MMR kannaði afstöðu fólks til þess hvort það vildi að ákvarðanataka vegna nýrra Icesave samninga yrði eingöngu í höndum Alþingis eða hvort það vildi að slíkir samningar væru bornir aftur undir þjóðaratkvæði?.
Fréttir (birtar niðurstöður)
MMR birtir reglulega niðurstöður úr könnunum sem unnar hafa verið meðal almennings um málefni líðandi stundar. Kannanirnar eru jafnan unnar sem hluti af spurningavagni MMR og efnistök valin af starfsfólki MMR út frá þeim fréttum sem eru áberandi í umfjöllun þegar viðkomandi könnunin hefst. MMR birtir ekki fréttatilkynningar úr könnunum sem eru unnar fyrir aðra eða fjármagnaðar af öðrum.
Danir telja rétt að Íslendingar greiði Icesave
Afstaða Dana ólík afstöðu Norðmanna og Svía.
MMR kannaði afstöðu almennings í Danmörku til kröfu Breta og Hollendinga á hendur íslenskum stjórnvöldum vegna Icesave skuldbindinganna.
63,7% eru andvíg því að rekstur spilavíta verði leyfður.
- en 71% karla undir þrítugu fylgjandi.
MMR kannaði hversu fylgjandi eða andvígt fólk væri gagnvart því að leyfa rekstur spilavíta á Íslandi.
Af þeim sem tóku afstöðu voru 63,7% sem sögðust frekar eða mjög andvíg hugmyndinni. Skipt eftir einstökum svörum voru 39,5% sem sögðust mjög andvíg, 24,2% sögðust frekar andvíg, 20,6% sögðust frekar fylgjandi og 15,7% sögðust mjög fylgjandi því að rekstur spilavíta væri leyfður á Íslandi.
Afstaða Norðmanna í Icesave málinu
Harðari afstaða til Íslands í Noregi en í Svíþjóð.
Af þeim voru 33% sem töldu rétt að Íslendingum yrði gert að endurgreiða Bretum og Hollendingum að fullu.
Flesti andvígir því að Jóhannes Jónsson fái að kaupa allt að 10% hlut í Högum
MMR kannaði hversu fylgjandi eða andvígt fólk væri gagnvart því að Jóhannes Jónsson (Jóhannes í Bónus), starfandi stjórnarformaður Haga,
fengi að kaupa allt að 10% hlut í Högum af Arion Banka.
9% Svía telja rétt að Íslendingum verði gert að greiða Icesave

Af þeim Svíum sem hafa skoðun á málinu eru 79% sem telja að Íslendingum beri annaðhvort að endurgreiða Bretum og Hollendingum að hluta til eða alls ekki.
Ferðalög og ferðaáform Íslendinga
Ferðamálastofa hefur birt niðurstöður könnunar MMR fyrir um ferðalög Íslendinga á árinu 2009 og ferðaáform fyrir árið 2010.
Í tilkynningu frá Ferðamálastofu kemur fram að "Ferðaárið 2009 var með líflegasta móti hjá landsmönnum samkvæmt nýrri könnun Ferðamálastofu um ferðalög Íslendinga innanlands.Í könnuninni, sem framkvæmd var í janúar síðstliðnum af MMR, kemur fram að níu Íslendingar af hverjum tíu hafi ferðast innanlands á árinu 2009 og er um að ræða nokkuð hærra hlutfall en fyrri kannanir Ferðamálastofu hafa sýnt.
56% styðja ákvörðun forseta Íslands um ICESAVE lögin
- 42% segjast myndu staðfesta Icesave lögin í þjóðaratkvæðagreiðslu
Ríflegur helmingur svarenda (55,7%) segjast styðja ákvörðun forseta Íslands um að staðfesta ekki nýju Icesave lögin og vísa þeim í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta eru töluvert færri en sögðust því fylgjandi að forsetinn synjaði lögunum og vísaði til þjóðaratkvæðagreiðslu í desember síðastliðnum (skv. könnun MMR fyrir Viðskiptablaðið). En þá voru 69,2% sem töldu að forsetinn ætti að synja nýjum Icesave lögum staðfestingar og vísa þeim til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Dómstólarnir njóta meira trausts en aðrar stoðir hins þrískipta ríkisvalds.
-þó einungis þriðjungur sem segist treysta dómskerfinu í heild
Tæpur helmingur svarenda (46,6%) segjast bera mikið traust til Hæstaréttar, 42,3% segjast bera mikið traust til dómsmálaráðuneytisins og 40,3% segjast bera mikið traust til héraðsdómstólanna. Á móti segist tæpur fjórðungur svarenda bera lítið traust til þessara stofnana. Þegar spurt var um dómskerfið í heild voru 36,5% sem kváðust bera mikið traust til þess sem er nánast sami fjöldi og segist bera lítið traust til dómskerfisins, eða 34%.
Meirihluti ber mikið traust til Evu Joly og sérstaks saksóknara
Tveir þriðju hlutar svarenda (66,9%) segjast bera mikið traust til Evu Joly, ráðgjafa sérstaks saksóknara vegna rannsóknar á refsiverðri háttsemi í tengslum við bankahrunið. Þetta eru 7,7 sinnum fleiri en segjast bera lítið traust til frú Joly (8,7%). Meirihluti svarenda (52,8%) kveðst einnig bera mikið traust til sérstaks saksóknara sem eru 3,5 sinnum fleiri en segjast bera lítið traust til hans (15,2%)
Landhelgisgæslan meðal þeirra stofnana sem njóta mests trausts
Stór hluti svarenda, eða 77,6%, segjast bera mikið traust til Landhelgisgæslunnar. Þessi fjöldi skipar Landhelgisgæslunni á bekk með Lögreglunni á lista yfir þær stofnanir sem njóta mests trausts meðal Íslendinga (sbr. könnun MMR frá í september 2009 þá naut Lögreglan trausts meðal 80,9% svarenda).
Traust til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins fer þverrandi
- Enn færri treysta bankakerfinu
- Lögreglan nýtur afgerandi trausts
80,9% aðspurðra segjast bera mikið traust til Lögreglunnar, 69,7% segjast bera mikið traust til Háskóla Íslands, 64,2% segjast bera mikið traust til Ríkisútvarpsins og Háskólinn í Reykjavík nýtur trausts 54,0% svarenda.
Morgunblaðið og mbl.is njóta trausts hátt í 60% svarenda
- Fréttastofa RÚV nýtur áberandi trausts meðal almennings
Um 75% aðspurðra segjast bera mikið traust til fréttastofu RÚV. Þetta eru ríflega tvöfalt fleiri en segjast bera mikið traust til fréttastofu Stöðvar 2 (37,2%). Morgunblaðið er enn sem fyrr það dagblað sem nýtur mests trausts meðal svarenda, en 57,9% þeirra segjast nú bera mikið traust til blaðsins.
Sjálfstæðisflokkkur bætir verulega við sig frá kosningum
- Fylgi ríkisstjórnarflokkanna dalar
- Minna en helmingur segist styðja ríkisstjórnina
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig tæpum 8% frá síðustu kosningum og mælist nú stærsti stjórnmálaflokkurinn á þingi, en 31,6% segjast myndu kjósa flokkinn væri gengið til kosninga í dag.
Steingrímur J. Sigfússon stendur styrkum fótum hvað traust áhrærir
- Traust til Jóhönnu dalar á heildina litið
- Steingrímur og Jóhanna njóta áfram afgerandi trausts meðal stuðningsmanna eigin flokka.
- Um og yfir helmingur segist bera lítið traust til forsetans, formanns Framsóknarflokksins,
formanns Sjálfstæðisflokksins og þingflokksformanns Borgarahreyfingarinnar
Flestir, eða 37,7%, sögðust bera mikið traust til Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra. Athygli vekur að fjöldi þeirra sem segist bera mikið traust til Steingríms hefur vart mælst meiri en nú (sjá meðfylgjandi mynd um þróun milli mælinga). Næst flestir, eða 36,0% sögðust bera mikið traust til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra.
72,1% telja sig ekki geta nefnt einstakling í samfélaginu sem sé eða geti orðið sameiningartákn fyrir íslensku þjóðina.
- Forsetinn nefndur sem sameiningartákn af 1% svarenda.
MMR kannaði hvort fólk gæti nefnt einhvern einstakling í samfélaginu sem væri eða gæti orðið sameiningartákn fyrir íslensku þjóðina. Áberandi flestir sögðu að þeim dytti enginn slíkur í hug (72,1%).
Háskóli Íslands, Lögreglan, Fréttastofa RÚV og Háskólinn í Reykjavík njóta sérstöðu hvað traust almennings varðar.
- Lífeyrissjóðirnir rúnir trausti.
- Fækkar í hópi þeirra sem þeirra sem segast bera lítið traust til ríkisstjórnarinnar, Seðlabankan
og Fjármálaeftirlitsins.
Fækkar í hópi þeirra sem segast bera lítið traust til ríkisstjórnarinnar, Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins.
Morgunblaðið og mbl.is njóta trausts ríflega 50% svarenda
- Fréttastofa RÚV nýtur mests trausts meðal almennings
- Aðrir fjölmiðlar njóta mikils trausts meðal þriðjungs svarenda eða færri
Um 70% aðspurðra segjast bera mikið traust til fréttastofu RÚV. Þetta eru nærri tvöfalt fleiri en segjast bera mikið traust til fréttastofu Stöðvar 2 (36,4%). Morgunblaðið er enn sem fyrr það dagblað sem nýtur mests trausts meðal svarenda, en 51,7% þeirra segjast nú bera mikið traust til blaðsins sem eru 17,4 prósentustigum fleiri en segjast bera mikið traust til Fréttablaðsins (34,3%).
Meirihluti telur annan hvorn núverandi stjórnarflokka best til þess fallinn að leiða helstu málaflokka á næstu mánuðum.
- Vinstri grænir leiði rannsókn á tildrögum bankahrunsins.
- Flestir vilja að Sjálfstæðisflokkurinn leiði efnahags- og skattamál
MMR kannaði afstöðu fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða þrettán málaflokka sem stjórnvöld þurfa eða gætu þurft að fást á við á næstu mánuðum.
Vinstri grænir bæta við sig fylgi frá því í mars
- Fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks stendur í stað milli mánaða
- Borgarahreyfing með 4,1% fylgi
Fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 29,8%. Þetta er lítil breyting frá síðustu könnun í mars 2009 þegar fylgi flokksins mældist 30,5%. Stuðningur við Sjálfstæðisflokk mælist nú 28,8% og fylgi Vinstri grænna 25,9%. Fylgi framsóknarflokksins mælist nú 9% og hið nýja framboð Borgarahreyfingarinnar mælist með 4,1% fylgi. Aðrir flokkar mælast undir 2% fylgi. Tekið skal fram að meirihluti gagnaöflunar vegna könnunarinnar átti sér stað dagana 6-7 apríl (áður en fregnir bárust af styrkjamálum stjórnmálaflokkanna).
Fleiri styðja Ingibjörgu Sólrúnu en Jón Baldvin
Í könnun MMR var spurt hvort fólk vildi heldur vilja sem formann Samfylkingarinnar, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur eða Jón Baldvin Hannibalsson. Samtals voru 35,1% sem sögðust heldur vilja Ingibjörgu Sólrúnu en 19% sögðust heldur vilja Jón Baldvin. 45,9% sögðust vilja hvorugt þeirra.
MMR er skrásett vörumerki Markaðs og miðlarannsókna ehf.