- Fréttastofa RÚV nýtur áberandi trausts meðal almennings
Um 75% aðspurðra segjast bera mikið traust til fréttastofu RÚV. Þetta eru ríflega tvöfalt fleiri en segjast bera mikið traust til fréttastofu Stöðvar 2 (37,2%). Morgunblaðið er enn sem fyrr það dagblað sem nýtur mests trausts meðal svarenda, en 57,9% þeirra segjast nú bera mikið traust til blaðsins.
Fréttablaðið nýtur mikils trausts meðal 38,1% svarenda. Meðal netfréttamiðla nýtur Mbl.is mests trausts, en 59,6% segjast bera mikið traust til Mbl.is, sem eru 32,7 prósentustigum fleiri en þeir sem segjast bera mikið traust til Visir.is (26,9%).
Niðurstöðurnar í heild: 0909_tilkynning_traustfjmidlar.pdf