MMR kannaði hversu fylgjandi eða andvígt fólk væri gagnvart því að Jóhannes Jónsson (Jóhannes í Bónus), starfandi stjórnarformaður Haga,
fengi að kaupa allt að 10% hlut í Högum af Arion Banka.

Af þeim sem tóku afstöðu voru í heild 80,1% sem sögðust frekar eða mjög andvíg hugmyndinni. Skipt eftir einstökum svörum voru 59,1% sem sögðust mjög andvíg, 21,0% sögðust frekar andvíg, 12,9% sögðust frekar fylgjandi og 7% sögðust mjög fylgjandi því að Jóhannes Jónsson fengi að kaupa allt að 10% hlut í Högum. Lítill munur mældist á afstöðu svarenda eftir kyni, aldri, búsetu og heimilistekjum. Í öllum hópum sögðust yfir 75% vera andvíg því að Jóhannes Jónsson fengi að kaupa allt að 10% hlut í Högum.

Niðurstöðurnar í heild:
1002_tilkynning_hagar.pdf