Forseti Íslands

|

- 42% segjast myndu staðfesta Icesave lögin í þjóðaratkvæðagreiðslu

icesave

Ríflegur helmingur svarenda (55,7%) segjast styðja ákvörðun forseta Íslands um að staðfesta ekki nýju Icesave lögin og vísa þeim í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta eru töluvert færri en sögðust því fylgjandi að forsetinn synjaði lögunum og vísaði til þjóðaratkvæðagreiðslu í desember síðastliðnum (skv. könnun MMR fyrir Viðskiptablaðið). En þá voru 69,2% sem  töldu að forsetinn ætti að synja nýjum Icesave lögum staðfestingar og vísa þeim til þjóðaratkvæðagreiðslu.

 

Litlu fleiri– eða 58,0% - segjast myndu kjósa á móti Icesave lögunum yrðu þau borin upp til kosninga í dag. Sem þýðir um leið að heil 42,0% svarenda segjast reiðubúin til að staðfesta lögin í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Áberandi andstaða er við ákvörðun forsetans um að staðfesta ekki nýju Icesave lögin meðal stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar, en 76,3% þeirra kváðust ekki styðja ákvörðun forsetans. Á hinn bóginn voru 80,6% þeirra sem sögðust ríkisstjórninni andvígir sem kváðust styðja ákvörðun forsetans.

1001_tilkynning_Icesave.pdf