- Forsetinn nefndur sem sameiningartákn af 1% svarenda.

MMR kannaði hvort fólk gæti nefnt einhvern einstakling í samfélaginu sem væri eða gæti orðið sameiningartákn fyrir íslensku þjóðina. Áberandi flestir sögðu að þeim dytti enginn slíkur í hug (72,1%).

Af þeim sem nefndir voru fengu flestar tilnefningar þau Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands (4,5%) og Davíð Oddsson, fyrrverandi ráðherra og seðlabankastjóri (3,8%).
Þar á eftir komu þau Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, en ríflega 2% svarenda nefndu annað hvort þeirra. Þá nefndu rétt um 1% svarenda þá Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins og Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands. Aðrir voru nefndir af færri en 1% svarenda.
Rétt er að árétta að spurningin sem lögð var fyrir, tók hvorki tillit til þess hvort fólk styddi eða treysti einstaklingum sem nefndir voru, heldur eingöngu hvort fólk teldi að þeir væru eða gætu orðið sameiningartákn fyrir íslensku þjóðina.

0909_01

Niðurstöðurnar í heild:
 0909_tilkynning_samtakn.pdf