Afstaða Dana ólík afstöðu Norðmanna og Svía.
MMR kannaði afstöðu almennings í Danmörku til kröfu Breta og Hollendinga á hendur íslenskum stjórnvöldum vegna Icesave skuldbindinganna.
Af þeim sem tóku afstöðu til spurningarinnar voru 45% sem töldu rétt að Íslendingum yrði gert að endurgreiða Bretum og Hollendingum að fullu vegna útborgunar yfirvalda í þessum löndum til innistæðueigenda vegna gjaldþrota íslenskra banka.
Í könnuninni kom einnig fram að 25% Dana svöruðu því til að Íslendingar ættu að neita að endurgreiða Bretum og Hollendingum og 30% Dana töldu að kostnaður vegna útborgana til innistæðueigenda ætti að deilast milli landanna þriggja. 37% Dana sögðust ekki hafa skoðun á málinu.
Niðurstöðurnar í heild:
1003_tilkynning_Icesave_DK.pdf