Hundaeign vex lítillega á milli ára en um fjórði hver Íslendingur býr á heimili með hundi. Almennt hefur dýrahald landans þó lítið breyst frá árinu 2015 en hundar og kettir eru enn sem áður vinsælustu gæludýr landsmanna. Þetta sýna niðurstöður könnunar MMR sem framkvæmd var dagana 18.-22. október 2018. Alls sögðu 24% svarenda einn eða fleiri hunda vera á heimili sínu, 16% kváðu ketti til staðar og 7% sögðust halda annars konar gæludýr. Þá kváðu 60% engin gæludýr vera að finna á heimilum sínum.
Fréttir (birtar niðurstöður)
MMR birtir reglulega niðurstöður úr könnunum sem unnar hafa verið meðal almennings um málefni líðandi stundar. Kannanirnar eru jafnan unnar sem hluti af spurningavagni MMR og efnistök valin af starfsfólki MMR út frá þeim fréttum sem eru áberandi í umfjöllun þegar viðkomandi könnunin hefst. MMR birtir ekki fréttatilkynningar úr könnunum sem eru unnar fyrir aðra eða fjármagnaðar af öðrum.
Meirihluti telur enn mikilvægt að fá nýja stjórnarskrá
Meirihluti landsmanna segir það mikilvægt að Íslendingar fái nýja stjórnarskrá á yfirstandandi kjörtímabili. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar MMR sem framkvæmd var dagana 18.-22. október 2018. Alls sögðu 34% aðspurðra það vera mjög mikilvægt að landsmenn fái nýja stjórnarskrá, 18% kváðu það frekar mikilvægt, 19% hvorki mikilvægt né lítilvægt, 11% frekar lítilvægt og 18% mjög lítilvægt.
Flestir vilja bálför
Fyrir marga er það ómissandi þáttur aðventunnar að vitja leiðis vina og ættingja sem fallnir eru frá. En hvernig viljum við sem lifum að gengið sé frá jarðneskum leifum okkar þegar þar að kemur? MMR kannaði málið og í ljós kom að flest kjósum við bálför eftir andlát. Alls sögðust 59% kjósa sér líkbrennslu eftir að hafa farið yfir móðuna miklu en 38% kváðust vilja greftrun. Þá kváðust 3% kjósa annars konar útför.
Nærri þriðjungur skoðar ekki næringarupplýsingar
Tæp 71% landsmanna skoða næringarupplýsingar á pakkningum matvæla og flestir velta þá fyrir sér sykurinnihaldi. Þetta sýna niðurstöður könnunar MMR sem fram fór dagana 3. til 10. ágúst 2018. Kváðust 61% svarenda skoða upplýsingar um sykurinnihald, 34% kolvetni, 32% orku eða hitaeiningar, 27% fitu, 23% prótein, 17% salt og 17% mettaða fitu. Þá kváðust 10% svarenda skoða aðrar næringarupplýsingar en 29% sögðust ekki skoða neinar næringarupplýsingar á pakkningum matvæla.
Meirihluti reiðubúinn að fara í verkfall til að bæta kjör
Nærri þrír af hverjum fjórum (74%) telja aðstæður á vinnumarkaði vera með þeim hætti að réttlætanlegt sé fyrir ákveðnar stafsstéttir að beita verkfalli til að ýta á um bætt starfskjör og meirihluti (59%) er tilbúinn að taka þátt í verkfalli til að bæta starfskjör sín og/eða annarra. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar MMR sem framkvæmd var dagana 15.-21. nóvember 2018.
Tveir þriðju lesa bækur á íslensku sér til skemmtunar
Rúmlega tveir af hverjum þremur (68%) hafa lesið bækur á íslensku sér til skemmtunar á síðustu 12 mánuðum en nær helmingur landsmanna (42%) sagðist að jafnaði lesa bækur í hverri viku. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar MMR á lestrarvenjum landsmanna sem framkvæmd var dagana 8.-12. nóvember 2018. Kváðust 41% svarenda eingöngu hafa lesið bækur á íslensku sér til skemmtunar, 27% kváðust hafa lesið bækur á bæði íslensku og öðrum tungumálum og 7% kváðust einungis hafa lesið bækur á öðrum tungumálum. Þá kváðust 25% svarenda ekki hafa lesið neinar bækur sér til skemmtunar yfir síðustu 12 mánuði.
Kosningaætlan í nóvember 2018
Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 19,8% landsmanna í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 8.-12. nóvember. Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkaði um eitt prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 22. október. Samfylkingin mældist með 16,6% fylgi, Miðflokkurinn með 12,1% fylgi og Vinstri græn með 11,5% fylgi, sem er svipað fylgi og flokkarnir þrír mældust með í síðustu könnun. Píratar töpuðu tæplega tveimur prósentustigum af fylgi sínu frá síðustu könnun og mældust með 11,3% fylgi.
Stuðningur við ríkisstjórnina fer minnkandi en 37,9% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 43,2% í síðustu mælingu.
Sumarið sem hvarf
Ekki nema 31% landsmanna sögðust ánægðir með veðrið á Íslandi í sumar. Um umtalsverðan samdrátt á veðuránægju er að ræða á milli ára en 80% landsmanna sögðust ánægðir með veðrið sumarið áður. Á hinn bógin voru 88% sem kváðust ánægð með sumarfríið sitt sem er svipaður fjöldi og í fyrra (þegar 86% sögðust ánægð með sumarfríið sitt).
Fækkar í leiguhúsnæði, ungt fólk í foreldrahúsum
Þeim Íslendingum sem búa í leiguhúsnæði hefur fækkað um 4% síðastliðna 12 mánuði samkvæmt nýrri könnun MMR sem framkvæmd var 3.-9. október. Kváðust 14% svarenda búa í leiguhúsnæði, samanborið við 18% árið 2017. Aftur á móti fjölgaði þeim milli ára sem bjuggu í foreldrahúsum og voru nú 13%, samanborið við 10% árið áður. Þá kváðust nú 72% búa í eigin húsnæði en það er tæplega 2% aukning frá síðustu mælingu.
Meirihluti hlynntur banni á einnota plastpokum
Nærri tveir af hverjum þremur Íslendingum sögðust hlynntir banni á einnota plastpokum í verslunum. Þetta sýna niðurstöður könnunar MMR sem fram fór dagana 3. til 10. ágúst 2018. Samtals kváðust 21% svarenda vera andvíg banni á einnota plastpokum, það er 9% mjög andvíg og 12% frekar andvíg. Þá kváðust tæp 21% frekar hlynnt banni og tæp 41% mjög hlynnt eða 61% samtals. Loks kváðust 17% hvorki vera andvíg né fylgjandi banni á einnota plastpokum í verslunum.
Fjarðarkaup efst í meðmælavísitölu MMR
Viðskiptavinir Fjarðarkaupa reyndust líklegri til að mæla með þjónustu Fjarðarkaupa en viðskiptavinir annarra fyrirtækja á Íslandi. Þetta eru niðurstöður nýlegrar könnunar MMR á meðmælavísitölu 85 þjónustufyrirtækja á einstaklingsmarkaði. Þá hefur heldur dregið úr því að viðskiptavinir Costco mæli með fyrirtækinu.
Kosningaætlan í október 2018
Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 20,8% landsmanna og er stærsti stjórnmálaflokkurinn á Alþingi samkvæmt nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 3.-9. október. Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkaði um hálft prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 12. september. Samfylkingin mældist með 16,7% fylgi sem er rúmum þremur prósentustigum minna en í síðustu mælingu. Píratar mældust með 12,7% fylgi sem er hálfu prósentustigi minna en í síðustu mælingu. Þá bætti Miðflokkurinn rúmu prósentustigi við fylgi sitt frá síðustu mælingum.
Stuðningur við ríkisstjórnina fer vaxandi en 47,5% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 41,1% í síðustu mælingu.
Jákvæðni gagnvart sjálfsafgreiðslukössum
Þrátt fyrir að innleiðing á sjálfsafgreiðslukössunum geti mögulega haft í för með sér ýmsa kosti fyrir neytendur, svo sem auknum afgreiðsluhraða og lækkuðu vöruverði sökum minnkaðs launakostnaðar verslana (sem geta fækkað starfsfólki á hefðbundnum afgreiðslukössum), hafa verið skiptar skoðanir á ágæti hinna nýtilkomnu tækja.
Flestir bursta tennurnar tvisvar á dag
Meirihluti landsmanna eða 63% bursta tennurnar tvisvar á dag. Þetta sýndu niðurstöður nýrrar könnunar MMR sem framkvæmd var dagana 25. júlí til 1. ágúst. Kváðust 25% bursta tennurnar daglega, 6% burstuðu þrisvar á dag og 1% fjórum sinnum eða oftar. Þá kváðust 3% bursta tennurnar sjaldnar en daglega og 1% burstaði aldrei tennurnar.
Fréttir helst sóttar á vefsíður fréttamiðla
Helmingur landsmanna sækir helst fréttir af vefsíðum fréttamiðla. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar MMR sem framkvæmd var dagana 3. ágúst til 10. ágúst. Þá kváðust 18% helst sækja fréttir í sjónvarp og 9% í útvarp. Athygli vekur að einungis 4% kváðust helst sækja fréttir í dagblöð en 9% sækja helst fréttir af samfélagsmiðlum.
Kosningaætlan í september 2018
Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 21,3% landsmanna og er stærsti stjórnmálaflokkurinn á Alþingi samkvæmt nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 7.-12. september. Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkaði um tæplega eitt prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 10. ágúst. Samfylkingin mældist með 19,8% fylgi sem er aukning um rúm þrjú prósentustig frá síðustu mælingu. Píratar mældust nú með 13,2% fylgi sem er nær óbreytt frá síðustu mælingu.
Stuðningur við ríkisstjórnina fer minnkandi en 41,1% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 41,7% í síðustu mælingu.
Meðmælavísitala (NPS) íslenskra fyrirtækja lækkar á milli ára
MMR kannaði nýlega meðmælavísitölu 85 íslenskra fyrirtækja í 21 atvinnugrein. Meðmælavísitalan byggir á Net Promoter Score aðferðafræðinni sem hefur rutt sér til rúms á síðastliðnum árum (meira um NPS hér að neðan).
Námsmenn „snúsa“ mest allra
Svo virðist sem það reynist námsmönnum hvað erfiðast að komast fram úr rúminu á morgnanna en tæplega tveir af hverjum þremur þeirra ýta að minnsta kosti einu sinni á „snús“ takkann (e. snooze). Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar MMR sem framkvæmd var dagana 25. júlí til 1. ágúst. Kváðust 48% svarenda ýta einu sinni eða oftar á „snús“ takkann á morgnanna, þar af 17% yfirleitt einu sinni en 6% fimm sinnum eða oftar. Þá sögðust 39% yfirleitt vinna bug á freistingunni til að „snúsa“ og 13% reyndust hetjur sem þurftu ekki á vekjaraklukku að halda.
Jákvæðni gagnvart erlendum ferðamönnum eykst
Samhliða fjölgun erlendra ferðamanna á Íslandi hefur MMR á undanförnum árum mælt viðhorf Íslendinga til þeirra gesta sem hingað sækja. Frá árinu 2015 til ársins 2017 hafði jákvæðni í garð erlendra ferðamanna farið minnkandi ár frá ári. Í ár virðist breyting á en samkvæmt könnun MMR sem lauk 1. ágúst síðastliðinn voru 68% landsmanna jákvæð gagnvart erlendum ferðamönnum, samanborið við 64% í fyrra. Þeir sem kváðust neikvæðir í garð erlendra ferðamanna mældust nú 9%, samanborið við 10% í fyrra og 12% árið þar á undan.
Flestir sofa 6-8 klukkustundir á nóttu
Nærri 90% landsmanna sögðust sofa að meðaltali 6-8 klukkustundir á nóttu, þar af nær helmingur í 7 klukkustundir. Þetta kom fram í könnun MMR sem framkvæmd var dagana 26. júní til 3. júlí 2018. Alls kváðust rúm 89% svarenda sofa að meðaltali í 6-8 klukkustundir á hverri nóttu en 44% sögðust sofa að meðaltali í 7 klukkustundir, 23% í 6 klukkustundir og 23% í 8 klukkustundir. Þá sögðust 6% sofa í 5 klukkustundir á nóttu, rúm 2% í 9 klukkustundir, tæp 2% í 0-4 klukkustundir og tæpt 1% í 10 klukkustundir eða meira.
Fleiri hyggjast ferðast bæði innan- og utanlands
Rúm 42% hugðust ferðast bæði innan- og utanlands í sumarfríi sínu samkvæmt könnun MMR sem framkvæmd var dagana 26. júní til 3. júlí. Þetta er 3 prósentustiga aukning frá síðustu könnun, sem framkvæmd var á sama tíma í fyrra. Hlutfall þeirra sem hugðu á ferðalög bæði innan- og utanlands hefur hækkað jafnt og þétt síðastliðin þrjú ár. Hlutfall þeirra sem hugðu eingöngu á ferðalög utanlands hélst í stað milli ára en hlutfall þeirra sem hugðu eingöngu á ferðalög innanlands lækkaði um þrjú prósent á milli ára.
MMR er skrásett vörumerki Markaðs og miðlarannsókna ehf.