Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 21,3% landsmanna og er stærsti stjórnmálaflokkurinn á Alþingi samkvæmt nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 7.-12. september. Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkaði um tæplega eitt prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 10. ágúst. Samfylkingin mældist með 19,8% fylgi sem er aukning um rúm þrjú prósentustig frá síðustu mælingu. Píratar mældust nú með 13,2% fylgi sem er nær óbreytt frá síðustu mælingu.
Stuðningur við ríkisstjórnina fer minnkandi en 41,1% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 41,7% í síðustu mælingu.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,1% og mældist 8,8% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 10,8% og mældist 10,3% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 8,1% og mældist 8,9% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 7,9% og mældist 8,7% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 5,3% og mældist 7,8% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 2,5% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 85,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (4,1%), myndu skila auðu (4,5%), myndu ekki kjósa (2,3%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,3%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 953 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 7. til 12. september 2018