Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 20,8% landsmanna og er stærsti stjórnmálaflokkurinn á Alþingi samkvæmt nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 3.-9. október. Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkaði um hálft prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 12. september. Samfylkingin mældist með 16,7% fylgi sem er rúmum þremur prósentustigum minna en í síðustu mælingu. Píratar mældust með 12,7% fylgi sem er hálfu prósentustigi minna en í síðustu mælingu. Þá bætti Miðflokkurinn rúmu prósentustigi við fylgi sitt frá síðustu mælingum.
Stuðningur við ríkisstjórnina fer vaxandi en 47,5% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 41,1% í síðustu mælingu.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 11,9% og mældist 10,8% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,9% og mældist 11,1% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 8,9% og mældist 8,1% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,6% og mældist 7,9% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,1% og mældist 5,3% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 3,2% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 83,3% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,2%), myndu skila auðu (5,7%), myndu ekki kjósa (2,3%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 921 einstaklingur, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 3. til 9. október 2018