Alþingiskosningar

|

Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 19,8% landsmanna í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 8.-12. nóvember. Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkaði um eitt prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 22. október. Samfylkingin mældist með 16,6% fylgi, Miðflokkurinn með 12,1% fylgi og Vinstri græn með 11,5% fylgi, sem er svipað fylgi og flokkarnir þrír mældust með í síðustu könnun. Píratar töpuðu tæplega tveimur prósentustigum af fylgi sínu frá síðustu könnun og mældust með 11,3% fylgi.

Stuðningur við ríkisstjórnina fer minnkandi en 37,9% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 43,2% í síðustu mælingu.

Fylgi Framsóknarflokks mældist nú 8,8% og mældist 7,8% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 7,8% og mældist 9,9% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 7,3% og mældist 5,9% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 4,7% samanlagt.

1811 Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,4% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,9%), myndu skila auðu (6,3%), myndu ekki kjósa (1,9%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,6%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

1811 Fylgi tími

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

1811 Studningur

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1048 einstaklingur, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 8. til 12. nóvember 2018