Ekki nema 31% landsmanna sögðust ánægðir með veðrið á Íslandi í sumar. Um umtalsverðan samdrátt á veðuránægju er að ræða á milli ára en 80% landsmanna sögðust ánægðir með veðrið sumarið áður. Á hinn bógin voru 88% sem kváðust ánægð með sumarfríið sitt sem er svipaður fjöldi og í fyrra (þegar 86% sögðust ánægð með sumarfríið sitt).
Þegar ánægja með sumarveðrið er skoðuð eftir landshlutum kemur í ljós að mesta ánægju með sumarveðrið var að finna á Norðaustur- og Austurlandi, þar sem 82% svarenda kváðust frekar eða mjög ánægðir. Þar á eftir voru íbúar Norðvestur- og Vesturlands (29%), nágrennis Reykjavíkur (22%) og Reykjavíkur (21%). Ánægja var minnst á meðal íbúa Suðurlands en einungis 14% þeirra tjáðu ánægju með veðrið í sumar.
Landakort fengið af vef Landmælinga Íslands.
Er litið er til afstöðu gagnvart veðurfari á Íslandi á milli ára má sjá að almenn ánægja hefur ekki verið jafn lítil frá því að mælingar MMR hófust árið 2010. Minnst hafði ánægjan áður mælst í ágúst 2013 þegar um 44% svarenda kváðust hafa verið ánægð með sumarveðrið, sem var 13 prósentustigum hærra en í mælingum 2018. Þá vekur athygli að eingöngu 9% sögðust mjög ánægð með veðurfarið í sumar en 33% kváðust mjög óánægð.
Þrátt fyrir mikla sveiflu í ánægju á sumarveðri á milli ára þá hefur ánægja fólks með sumarfríið sitt haldist nokkuð stöðug. Frá því að mælingar hófust árið 2010 hefur ánægja Íslendinga með sumarfríið sitt verið á bilinu 86% til 91%.
Spurt var: „Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með eftirfarandi?“ (atriði A til B birtust í tilviljunarkenndri röð). A: „Sumarfríið þitt“, B: „Veðrið á Íslandi í sumar“.
Svarmöguleikar voru: „Mjög ánægð(ur)“, „Frekar ánægð(ur)“, „Frekar óánægð(ur)“, „Mjög óánægð(ur)“, „Á ekki við“ og „Veit ekki/vil ekki svara“.
Niðurstöður sýna fjölda þeirra sem tóku afstöðu. Fjöldi þeirra sem tók afstöðu til einstakra spurninga var á bilinu 98,0% (veður) til 86,4% (sumarfrí).

Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 953 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 7. til 12. september 2018
Eldri kannanir sama efnis:
2017 ágúst: MMR könnun á ánægju Íslendinga
2016 ágúst: MMR könnun á ánægju Íslendinga
2015 ágúst: MMR könnun á ánægju Íslendinga
2014 ágúst: MMR könnun á ánægju Íslendinga
2014 ágúst: MMR könnun á ánægju með veðrið
2013 ágúst: MMR könnun á ánægju Íslendinga
2012 september: MMR könnun á ánægju Íslendinga
2011 ágúst: MMR könnun á ánægju Íslendinga