Útlit er fyrir að Covid faraldurinn muni koma niður á skötuáti landsmanna annað ári í röð en einungis 30% segjast ætla að gæða sér á skötu á Þorláksmessu þetta árið. Var hið sama uppi á teningnum í fyrra en skötuát Íslendinga hafði mælst stöðugt í 35-38% á árunum 2014 til 2019, áður en faraldurinn hófst. Alls hefur hlutfall þeirra sem segjast ætla í skötu lækkað um 12 prósentustig frá því að mælingar MMR á jólahefðum landsmanna hófust árið 2011.
Spurt var: Ætlar þú að borða skötu á Þorláksmessu?
Svarmöguleikar voru: Já, nei og veit ekki/vil ekki svara.
Samtals tóku 91,3% afstöðu til spurningarinnar.
Munur eftir lýðfræðihópum
Skötusókn er mest meðal svarenda 68 ára og eldri en 50% þeirra sögðust ætla að borða skötu á Þorláksmessu, 6 prósentustigum fleiri en í könnun síðasta árs. Skötuástin virðist öllu minni meðal svarenda yngri aldurshópanna en einungis 17% svarenda á aldrinum 18-29 ára og 25% þeirra 30-49 ára kváðust ætla að leggja skötuna sér til munns þetta árið. Karlar reyndust líkt og áður líklegri til að heillast af hátíðarréttinum kæsta en 37% þeirra kváðust munu gæða sér á skötu í ár, samanborið við 23% kvenna. Þá helst skötuhefðin sterk á landsbyggðinni en líkt og fyrri ár reyndust svarendur búsettir utan höfuðborgarsvæðisins (38%) líklegri en höfuðborgarbúar (25%) til að segjast ætla í skötu.
Stuðningsfólk Miðflokksins bar af í skötuást sinni þetta árið en heil 46% þeirra kváðust ætla að borða skötu á Þorláksmessu. Næst komu stuðningsfólk Framsóknarflokksins (38%), Sjálfstæðisflokksins (35%), Vinstri grænna (33%) og Flokks fólksins (31%) en stuðningsfólk Viðreisnar (26%), Samfylkingarinnar (24%) og Pírata (22%) reyndist ólíklegast til að segjast ætla að hyggja á skötuát þetta árið.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 2.051 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 13. til 20. desember 2021
Eldri kannanir sama efnis:
2020 desember: Færri hyggjast fara í skötu á tímum Covid-19
2019 desember: Þriðjungur landsmanna haldinn ólæknandi skötuást
2018 desember: Þriðjungur í skötu á Þorláksmessu
2017 desember: Skötunni fatast flugið
2016 desember: Unga kynslóðin skeptísk á skötuna
2015 desember: Vinsældir skötu dragast saman
2014 desember: 38% landsmanna ætla að borða skötu á Þorláksmessu
2013 desember: Yfir 100.000 Íslendingar ætla að borða skötu á Þorláksmessu
2012 desember: Rúmlega 84.000 Íslendingar ætla að borða skötu á Þorláksmessu
2011 desember: Vinsælt að borða skötu á Þorláksmessu