Jólahefðir Matarvenjur

|

Allt stefnir í að draga muni úr aðsókn í skötu á morgun en einungis 30% landsmanna segjast ætla að gæða sér á skötu á Þorláksmessu þetta árið. Telja má líklegt að hér sé að merkja áhrif Covid-19 á skötuveislur Íslendinga en hlutfall þeirra sem ætlar í skötu lækkar um sjö prósentustig á milli ára. Áður hafði hlutfallið mælst stöðugt í 35-38% á árunum 2014 til 2019. Alls hefur hlutfall þeirra sem segjast ætla í skötu lækkað um 12 prósentustig frá því að mælingar MMR á jólahefðum landsmanna hófust árið 2011.

1912 SkataSpurt var: Ætlar þú að borða skötu á Þorláksmessu?
Svarmöguleikar voru: Já, nei og veit ekki/vil ekki svara.
Samtals tóku 89,5% afstöðu til spurningarinnar.
 

 

Munur eftir lýðfræðihópum

Enn sem áður höfðar skatan meira til eldri aldurshópanna en 44% svarenda 68 ára og eldri kváðust ætla í skötu þetta árið, samanborið við einungis 16% þeirra 18-29 ára. Karlar reyndust öllu sólgnari í skötuna þetta árið og kváðust 35% þeirra munu gæða sér á hátíðarréttinum sígilda, samanborið við 24% kvenna. Þá virðist skötuhefðin hafa skotið dýpri rótum á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu en líkt og fyrri ár reyndust svarendur af landsbyggðinni (38%) líklegri en höfuðborgarbúar (25%) til að segjast ætla í skötu þetta árið.

 

1912 Skata x

Stuðningsfólk Framsóknarflokksins ber höfuð og herðar yfir stuðningsfólk annarra flokka þegar kemur að fyrirætlunum um skötuát þetta árið en 62% þeirra segjast ætla að borða skötu á morgun, Þorláksmessudag. Næst komu stuðningsfólk Miðflokksins (32%) og Sjálfstæðisflokksins (32%) en stuðningsfólk Pírata (21%), Samfylkingarinnar (21%) og Vinstri-grænna (22%) reyndist ólíklegast til að segjast ætla að hyggja á skötuát þetta árið.

1912 Skata x2

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 947 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 10. til 16. desember 2020

Eldri kannanir sama efnis:
2019 desember: Þriðjungur landsmanna haldinn ólæknandi skötuást
2018 desember: Þriðjungur í skötu á Þorláksmessu
2017 desember: Skötunni fatast flugið
2016 desember: Unga kynslóðin skeptísk á skötuna
2015 desember: Vinsældir skötu dragast saman
2014 desember: 38% landsmanna ætla að borða skötu á Þorláksmessu
2013 desember: Yfir 100.000 Íslendingar ætla að borða skötu á Þorláksmessu
2012 desember: Rúmlega 84.000 Íslendingar ætla að borða skötu á Þorláksmessu
2011 desember: Vinsælt að borða skötu á Þorláksmessu