Hamborgarhryggurinn heldur fast í sæti sitt á borðum landsmanna þetta árið en nær helmingur (47%) hyggst gæða sér á hátíðarréttinum hefðbundna á aðfangadagskvöld. Lambakjöt annað en hangikjöt (10%) situr líkt og síðustu tvö ár í örðu sæti mælinga en þeim fjölgar sem segjast nú ætla að gæða sér á nautakjöti (6%). Þá virðist aðeins hafa dregið úr vinsældum grænmetisfæðis, sem missir sæti sitt á lista vinsælustu hátíðarréttanna til andarinnar (4%). Þetta kemur fram í nýrri jólakönnun MMR sem framkvæmd var dagana 13.-20. desember 2021.
Spurt var: Hvað er líklegast að þú munir borða sem aðalrétt á aðfangadagskvöld?
Svarmöguleikar voru: Fiskur/sjávarfang, gæs, grænmetisfæði, hangikjöt, hamborgarhryggur, hreindýrakjöt, kalkúnn, kjúklingur,
lambakjöt (annað en hangikjöt)*, nautakjöt, rjúpur, svínakjöt (annað en hamborgarhryggur)**, önd, annað kjöt, annað og veit ekki/vil ekki svara.
Samtals tóku 96,8% afstöðu til spurningarinnar.
Munur eftir lýðfræðihópum
Hamborgarhryggurinn reyndist vinsælli hjá svarendum 50-67 ára þetta árið (52%) heldur en hjá svarendum annarra aldurshópa. Svarendur elsta aldurshópsins reyndust líklegri en svarendur annarra aldurshópa til að segjast ætla að snæða lambakjöt annað en hangikjöt (18%) eða önd (8%) á aðfangadagskvöld en og fóru vinsældir beggja rétta minnkandi með lækkuðum aldri svarenda. Þá reyndust svarendur í yngsta aldurshópi líklegastir allra til að segjast ætla að gæða sér á kalkún (11%) eða öðrum réttum en þeim sem hér eru taldir upp (22%).
Svarendur af landsbyggðinni reyndust öllu líklegri til að segjast munu borða hamborgarhrygg (52%) eða lambakjöt annað en hangikjöt (12%) á aðfangadag heldur en þau á höfuðborgarsvæðinu (45% hamborgarhrygg, 8% lambakjöt). Íbúar höfuðborgarsvæðisins reyndust hins vegar líklegri til að segjast ætla að borða kalkún (10%) eða nautakjöt (7%) heldur en þau af landsbyggðinni (7% kalkún; 4% nautakjöt).
Þá reyndust konur (11%) líklegri en karlar (7%) til að segjast ætla að borða kalkún á aðfangadagskvöld en karlar voru líklegri til að segjast ætla að borða hamborgarhrygg (49%) eða nautakjöt (8%).
Stuðningsfólk Flokks fólksins (57%) reyndist líklegra en stuðningsfólk annarra flokka til að segjast ætla að borða hamborgarhrygg á aðfangadag en stuðningsfólk Pírata (37%) ólíklegast. Stuðningsfólk Miðflokksins (17%) og Framsóknarflokksins (15%) reyndist líklegast allra til að segjast ætla að gæða sér á lambakjöti öðru en hangikjöti en stuðningsmenn Miðflokksins, ásamt stuðningsfólki Viðreisnar reyndist einnig líklegra en stuðningsfólk annarra flokka til að segjast ætla að snæða nautakjöt (10%) á aðfangadagskvöld. Stuðningsfólk Pírata (14%) reyndist líkt og í fyrra líklegast til að segjast ætla að borða kalkún (14%) eða aðra rétti en þá sem hér eru taldir (26%). Þá var stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins líklegra en stuðningsfólk annarra flokka til að segjast ætla að gæða sér á rjúpu í ár.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 2.051 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 13.-20. desember 2021
Eldri kannanir sama efnis:
2020 desember: Dregur úr vinsældum rjúpunnar
2019 desember: Hamborgarhryggurinn vinsælastur en neysla grænmetisfæðis eykst
2018 desember: Hamborgarhryggshefðin sterk á aðfangadag
2017 desember: Margir gæða sér á hamborgarhrygg
2016 desember: Hamborgarhryggur vinsæll á aðfangadag
2015 desember: Matarhefðir ríkjandi á aðfangadag meðal Íslendinga
2014 desember: Helmingur Íslendinga borðar hamborgarhrygg á aðfangadag
2013 desember: Flestir borða hamborgarhrygg á aðfangadag
2012 desember: Meirihluti ætlar að snæða hamborgarhrygg á aðfangadag
2011 desember: Hamborgarhryggur vinsælastur á aðfangadag
2010 desember: Íslendingar halda fast í hefðir í jólamat á jólum