MMR kannaði hvað fólk ætlaði að borða í aðalrétt á aðfangadag á þessari jólahátíð. Nú sem endranær var hamborgarhryggur langvinsælasti aðalrétturinn á borðum landsmanna á aðfangadag og breytingar milli ára óverulegar. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 52,1% ætla að borða hamborgarhrygg á aðfangadag, 11,3% sögðust ætla að borða annað lambakjöt en hangikjöt, 7,4% sögðust ætla að borða rjúpu, 7,2% kalkún, 5,0% svínakjöt annað en hamborgarhrygg og 17,0% sögðust ætla að borða eitthvað annað en fyrrgreinda kosti.
Spurt var: „Hvað er líklegast að þú munir borða sem aðalrétt á aðfangadagskvöld?“
Svarmöguleikar voru: Fiskur/sjávarfang, gæs, grænmetisfæði, hangikjöt, hamborgarhryggur, hreindýrakjöt, kalkúnn, kjúklingur, lambakjöt (annað en hangikjöt)*, nautakjöt, rjúpur, svínakjöt (annað en hamborgarhryggur)**, önd, annað kjöt, annað og veit ekki/vil ekki svara. Samtals tóku 98,3% afstöðu til spurningarinnar.
Nokkur munur milli hópa hvað fólk ætlaði að borða á aðfangadag
Samkvæmt könnuninni var nokkur munur á því hvað fólk ætlaði að borða á aðfangadag jóla þetta árið eftir aldri, búsetu og stuðningi við stjórnmálaflokka.
Nokkuð dregur úr vinsældum hamborgarhryggs með auknum aldri en af þeim sem tóku afstöðu sagðist meirihluti yngsta aldurshópsins (18-29 ára) að þeir ætluðu að hafa hamborgarhrygg á aðfangadag eða 59,0% borið saman við 51,3% í aldurshópnum 30 – 49 ára og 46,9% elsta aldurshópsins (50 – 67 ára).
Val á aðalrétt á aðfangadagskvöld var einnig breytilegt eftir búsetu. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 57,7% þeirra sem bjuggu á landsbyggðinni ætla að hafa hamborgarhrygg borið saman við 48,1% þeirra sem bjuggu á höfuðborgarsvæðinu.
Eins og ofangreindar upplýsingar gefa til kynna var hamborgarhryggur vinsæll á meðal stuðningsmanna allra stjórnmálaflokka.Hamborgarhryggur virtist þó vera í sérlegu uppáhaldi meðal þeirra sem kváðust styðja Framsóknarflokkinn en af þeim sem tóku afstöðu og studdu Framsóknarflokkinn sögðust 63,1% borða hamborgarhrygg á aðfangadag, borið saman við 42,2% þeirra sem kváðust styðja Vinstri-græna.
Annað lambakjöt en hangikjöt var vinsælla meðal þeirra sem kváðust styðja VG en aðra flokka. Af þeim sem tóku afstöðu og kváðust styðja VG sögðust 24,3% borða lambakjöt (annað en hangikjöt) á aðfangadag en aðeins 7,5% þeirra sem kváðust styðja Sjálfsstæðisflokkinn.
Kalkúnn naut mestra vinsælda á meðal þeirra er kváðust styðja Samfylkinguna en minnstra vinsælda meðal þeirra er kváðust styðja Framsóknarflokkinn. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Samfylkinguna sögðust 11,8% ætla að borða Kalkún, borið saman við 1,6% þeirra er studdu Framsóknarflokkinn.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 877 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára
Dagsetning framkvæmdar: 7.-11. desember 2012
Eldri kannanir sama efnis:
2011 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á aðfangadag
2010 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á aðfangadag
Niðurstöðurnar á PDF:1212_tilkynning_adfangadagur.pdf
Notkun heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er getið.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.