MMR kannaði hvað fólk ætlaði að borða í aðalrétt á aðfangadag á þessari jólahátíð. Nú sem endranær stefnir í að hamborgarhryggur verði langvinsælasti aðalrétturinn á borðum landsmanna á aðfangadag. Vinsældir hamborgarhryggs minnka þó aðeins frá því í fyrra. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 47,5% ætla að borða hamborgarhrygg á aðfangadag nú, borið saman við 52,1% í fyrra (2012).
Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 11,7% ætla að borða kalkún sem aðalrétt á aðfangadag, 10,0% sögðust ætla að borða annað lambakjöt en hangikjöt, 6,8% sögðust ætla að borða rjúpur, 4,9% sögðust ætla að borða svínakjöt annað en hamborgarhrygg og 19,1% sögðust ætla að borða eitthvað annað en fyrrgreinda kosti.
Spurt var: „Hvað er líklegast að þú munir borða sem aðalrétt á aðfangadagskvöld?“
Svarmöguleikar voru: Fiskur/sjávarfang, gæs, grænmetisfæði, hangikjöt, hamborgarhryggur, hreindýrakjöt, kalkúnn, kjúklingur, lambakjöt (annað en hangikjöt)*, nautakjöt, rjúpur, svínakjöt (annað en hamborgarhryggur)**, önd, annað kjöt, annað og veit ekki/vil ekki svara. Samtals tóku 97,4% afstöðu til spurningarinnar.
Nokkur munur milli hópa hvað fólk ætlaði að borða á aðfangadag
Samkvæmt könnuninni var nokkur munur á því hvað fólk ætlaði að borða á aðfangadag jóla þetta árið eftir aldri, búsetu og stuðningi við stjórnmálaflokka.
Nokkuð dregur úr vinsældum hamborgarhryggs með auknum aldri en af þeim sem tóku afstöðu sagðist meirihluti yngsta aldurshópsins (18-29 ára) að þeir ætluðu að hafa hamborgarhrygg á aðfangadag eða 53,5% borið saman við 48,2% í aldurshópnum 30-49 ára og 44,3% í aldurshópnum 50-67 ára og 34,7% í elsta aldurshópnum (68 ára og eldri).
Kalkúnn er vinsælli á meðal íbúa höfuðborgarsvæðisins en íbúa á landsbyggðinni. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 15,3% þeirra sem bjuggu á höfuðborgarsvæðinu ætla að hafa kalkún sem aðalrétt á aðfangadag, borið saman við 6,1% þeirra sem bjuggu á landsbyggðinni.
Eins og ofangreindar upplýsingar gefa til kynna var hamborgarhryggur vinsæll á meðal stuðningsmanna allra stjórnmálaflokka. Hamborgarhryggur virtist þó vera í sérlegu uppáhaldi meðal þeirra sem kváðust styðja Framsóknarflokkinn en af þeim sem tóku afstöðu og studdu Framsóknarflokkinn sögðust 69,0% borða hamborgarhrygg á aðfangadag, borið saman við 36,3% þeirra sem kváðust styðja Bjarta framtíð.
Þeir sem sögðust styðja Pírata voru óhefðbundnari í vali á aðalrétti á aðfangadag en stuðningsfólk annarra stjórnmálaflokka. Af þeim sem tóku afstöðu og kváðust styðja Píratar sögðust 39,2% ætla að borða eitthvað annað en fyrrgreinda kosti í aðalrétt á aðfangadag, borið saman við 9,5% þeirra sem sögðust styðja Framsóknarflokkinn.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 995 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 13.-17. desember 2013
Eldri kannanir sama efnis:
2012 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á aðfangadag
2011 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á aðfangadag
2010 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á aðfangadag
Notkun heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er getið.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.