Jólahefðir

|

MMR kannaði hvað fólk ætlaði að borða í aðalrétt á aðfangadag á komandi jólahátíð. Hamborgarahryggur virðist vera fastur liður á aðfangadagskvöldi hjá um helming Íslendinga.

Til gamans má geta að hefðir virðast ríkja hjá mörgum Íslendingum hvað varðar aðalrétt á aðfangadag. Um 88% sem sögðust ætla að hafa hamborgarhrygg á boðstólnum þetta árið voru einnig með hann í fyrra. Það sama má segja um þá Íslendinga sem sögðust bragða á öðrum algengum aðalréttum á aðfangadag þar sem um 77% sem borða lambakjöt (annað en hangikjöt) þetta árið voru einnig með það í fyrra, um 70% þeirra sem sögðust borða rjúpur þetta árið nutu þeirra einnig í fyrra og 66% þeirra sem sögðust borða kalkún þetta árið borðuðu hann einnig árið 2014.

Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 49,8% ætla að borða hamborgarhrygg á aðfangadag, 11,5% sögðust ætla að borða lambakjöt (annað en hangikjöt), 7,2% sögðust ætla að borða rjúpur, 8,2% sögðust ætla að borða kalkún, 3,8% sögðust ætla að borða svínakjöt (annað en hamborgarhrygg) og 19,5% sögðust ætla að borða eitthvað annað en fyrrgreinda kosti.1512 adfangadagur 01CSpurt var: Hvað er líklegast að þú munir borða sem aðalrétt á aðfangadagskvöld?
Svarmöguleikar voru: Fiskur/sjávarfang, gæs, grænmetisfæði, hangikjöt, hamborgarhryggur, hreindýrakjöt, kalkúnn, kjúklingur, lambakjöt (annað en hangikjöt)*, nautakjöt, rjúpur, svínakjöt (annað en hamborgarhryggur)**, önd, annað kjöt, annað og veit ekki/vil ekki svara.
Samtals tóku 96,7% afstöðu til spurningarinnar.

Nokkur munur milli hópa hvað fólk ætlaði að borða á aðfangadag

Samkvæmt könnuninni var meðal annars munur á því hvað fólk ætlaði að borða á aðfangadag jóla þetta árið eftir aldri, búsetu og stuðningi við stjórnmálaflokka.

Þeir sem tilheyrðu aldurshópunum 50-67 ára og 68 ára og eldri borða síður hamborgarhrygg á aðfangadaskvöld en aðrir hópar. Þeir sem tilheyrðu aldurshópnum 50-67 ára voru hinsvegar líklegri til að borða lambakjöt eða einhverskonar annað kjöt ( t.d nautakjöt, önd eða hreindýrakjöt) á aðfangadag miðað við aðra aldurshópa. Þeir sem tilheyrðu aldurshópnum 68 ára og eldri voru líklegri til að borða rjúpur á aðfangadag miðað við aðra aldurshópa. Af þeim sem tóku afstöðu og voru á aldrinum 50-67 ára sögðust 43,5% ætla að borða hamborgarhrygg á aðfangadag og 13,7% sögðust ætla að borða lambakjöt (annað en hangikjöt). Af þeim sem tóku afstöðu og voru 68 ára og eldri sögðust 44% ætla að borða hamborgarhrygg á aðfangadag og 14% rjúpur. Til samanburðar sögðust 58,8% þeirra sem tilheyrðu yngsta aldurshópnum (18-29 ára) ætla að borða hamborgarhrygg á aðfangadag, 8,8% sögðust ætla að borða lambakjöt (annað en hangikjöt) og 4,8% rjúpur.

Íbúar á landsbyggðinni borða frekar lambakjöt á aðfangadag (14,7%) en íbúar höfuðborgarsvæðisins (9,3%). Íbúar á höfuðborgarsvæðinu er aftur á móti líklegri til að kjósa kalkún á sinn disk á aðfangadag (12,1%) heldur en íbúar á landsbyggðinni (2,3%).

Lambakjöt nýtur meiri vinsælda sem aðalréttur á aðfangadag meðal stuðningsfólks Framsóknarflokksins en stuðningsfólks annarra flokka. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Framsóknarflokkinn sögðust 23,4% ætla að borða lambakjöt (annað en hangikjöt) sem aðalrétt að aðfangadag, borið saman við 6,4% Pírata. Stuðningsfólk Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokkinn sögðust frekar ætla að borða rjúpur sem aðalrétt á aðfangadag en stuðningsfólk annarra flokka. Af þeim sem tóku afstöðu voru 12,7% þeirra sem studdu Framsóknarflokkinn og 11,6% þeirra sem studdu Sjálfstæðisflokkinn ætla að borða rjúpur á aðfangadag, borið saman við 4,9% Pírata og 3,3% Bjartrar framtíðar.

1512 adfangadagur 02A

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1010 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 15.-18. desember 2015

Eldri kannanir sama efnis:
2014 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á aðfangadag
2013 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á aðfangadag
2012 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á aðfangadag
2011 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á aðfangadag
2010 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á aðfangadag