MMR mældi á dögunum traust almennings til forystufólks í stjórnmálum. Flestir sögðust bera mikið traust til Ólafs Ragnars grímssonar, forseta Íslands (46,5%), Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs (46,1%) og Jóns Gnarr, borgarstjóra (39,4%). Annað forystufólk í stjórnmálum sem könnunin náði til naut mikils trausts um eða undir fjórðungs þeirra sem tóku afstöðu. Að undanskildum Jóni Gnarr, borgarstjóra í Reykjavík hefur traust til alls forystufólks í stjórnmálum sem könnunin náði til dregist saman frá síðustu könnun í júní 2013.
Spurt var: Hve mikið eða lítið traust berð þú til eftirfarandi aðila. Svarmöguleikar voru mjög lítið traust, frekar lítið traust, hvorki mikið né lítið traust, frekar mikið traust, mjög mikið traust og veit ekki/vil ekki svara.
Niðurstöður sýna fjölda þeirra sem svöruðu annað hvort mjög/frekar mikið eða lítið traust.
Samtals tóku 95,7% afstöðu til spurningarinnar.
Þróun milli mælinga*:
*ekki eru til mælingar á öllum aðilunum í öll skipti
Að undanskildum Jóni Gnarr, borgarstjóra í Reykjavík hefur traust til alls forystufólks í stjórnmálum sem könnunin náði til dregist saman frá síðustu könnun í júní 2013.
Frá síðustu mælingu (frá júní 2013) dróst traust til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur mest saman. Í siðustu mælingu sögðust 48,8% bera mikið traust til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, borið saman við 23,2% nú og þá sögðust 51,5% bera mikið traust til Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borið saman við 26,8% nú.
Traust til forystufólk í stjórnmálum eftir stuðningi stjórnmálaflokka í síðustu Alþingiskosningum:
Af þeim sem tóku afstöðu sagðist meirihluti bera mikið traust til formanns þess flokk sem það kaus í síðustu Alþingiskosningum. Þegar traust til flokksformanna var skoðað eftir stuðningsfólki eigin flokka kom í ljós að Katrín Jakobsdóttir naut mikils trausts meðal 90,1% þeirra sem kusu Vinstri-græn í síðustu kosningum, Guðmundur Steingrímsson naut mikils traust meðal þeirra sem kusu Bjarta framtíð, Birgitta Jónsdóttir naut trausts 67,2% þeirra sem kusu Pírata, Bjarni Benediksson naut trausts 63,0% þeirra sem kusu Sjálfstæðisflokkinn, Árni Páll Árnason naut trausts 62,7% þeirra sem kusu Samfylkinguna og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson naut trausts 56,7% þeirra sem kusu Framsóknarflokkinn í síðustu kosningum.
Aðeins í tilfelli þeirra sem kusu Samfylkinguna í síðustu Alþingiskosningum ríkti meira traust til einstaklings í sem tilheyrði öðrum flokki en til formanns flokksins. Þannig naut Katrín Jakobsdóttir trausts 80,7% þeirra sem studdu Samfylkinguna á meðan Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinna, naut trausts 62,7% þeirra sem studdu Samfylkinguna.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1013 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 25 til 28. febrúar 2014
Eldri kannanir sama efnis:
2013 júní: MMR könnun á trausti til forystufólks í stjórnmálum
2013 febrúar: MMR könnun á trausti til forystufólks í stjórnmálum
2012 apríl: MMR könnun á trausti til forystufólks í stjórnmálum
2011 mars: MMR könnun á trausti til forystufólks í stjórnmálum
2010 maí: MMR könnun á trausti til forystufólks í stjórnmálum
2009 sept: MMR könnun á trausti til forystufólks í stjórnmálum
2009 feb: MMR könnun á trausti til forystufólks í stjórnmálum
2009 jan: MMR könnun á trausti til formanna stjórnmálaflokkanna
2008 Des: MMR könnun á trausti almennings til áhrifafólks í samfélaginu