Traust

|

MMR traust

Í könnun MMR á trausti almennings til forystufólks í stjórnmálum sem var gerð nú í febrúar voru flestir, eða 58,6% þeirra sem tóku afstöðu, sem sögðust bera mikið traust til Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Traust til Ólafs Ragnars hefur aukist stöðugt frá árinu 2009 þegar það mældist 22,9% (sjá meðfylgjandi mynd um þróun milli mælinga).


Þá sögðust 47,1% þeirra sem tóku afstöðu bera mikið traust til Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og 44,4% sögðust bera mikið traust til Katrínar Jakobsdóttur. Það er umtalsvert hærra hlutfall en sagðist bera mikið traust til annarra stjórnmálaforingja sem í mældust allir njóta lítils trausts hjá fleirum en sögðust bera mikið traust til þeirra. Fæstir, eða 14,6% þeirra sem tóku afstöðu, sögðust bera mikið traust til Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins.

Líkt og í fyrri mælingum þá njóta flokksformenn almennt mikils trausts meðal stuðningsmanna eigin flokka. Þannig mælast formenn Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Vinstri grænna og Bjartrar framtíðar njóta trausts 70% til 84% stuðningsfólks eigin flokka. Formaður Sjálfstæðisflokksins sker sig aftur á móti nokkuð úr hvað þetta varðar en rétt um 50% þeirra sem myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn nú segjast jafnframt bera mikið traust til hans. Þá er athyglivert að sjá að bæði Hanna Birna Kristjánsdóttir og Katrín Jakobsdóttir, sem báðar hafa verið orðaðar við formannsembætti í eigin flokkum, mælast hafa meira traust meðal eigin samflokksfólks en nokkur núverandi flokksformaður (eða um og yfir 85% hvor).

 

1302 trauststjornm 1Spurt var: Hve mikið eða lítið traust berð þú til eftirfarandi aðila. Svarmöguleikar voru mjög lítið traust, frekar lítið traust, hvorki mikið né lítið traust, frekar mikið traust, mjög mikið traust og veit ekki/vil ekki svara. Niðurstöður sýna fjölda þeirra sem svöruðu annað hvort mjög/frekar mikið eða lítið traust. Samtals tóku 96,1% afstöðu til spurningarinnar.


Þróun milli mælinga*:

*ekki eru til mælingar á öllum aðilunum í öll skipti

1302 trauststjornm 2 

1302 trauststjornm 3

 

Traust til leiðtoga eftir stuðningi svarenda við stjórnmálaflokka:

1302 trauststjornm 4 

 

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 814 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára
Dagsetning framkvæmdar: 19. janúar til 21. febrúar 2013

Eldri kannanir sama efnis:

2012 apríl: MMR könnun á trausti til forystufólks í stjórnmálum
2011 mars: MMR könnun á trausti til forystufólks í stjórnmálum
2010 maí: MMR könnun á trausti til forystufólks í stjórnmálum
2009 sept: MMR könnun á trausti til forystufólks í stjórnmálum
2009 feb: MMR könnun á trausti til forystufólks í stjórnmálum
2009 jan: MMR könnun á trausti til formanna stjórnmálaflokkanna
2008 Des: MMR könnun á trausti almennings til áhrifafólks í samfélaginu

Niðurstöðurnar á PDF:
pdf1302_tilkynning_trauststjornm.pdf

Notkun heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er getið.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.