Jólahefðir

|

Ekkert lát er á vinsældum gervitrjáa á meðal landsmanna en þeim fækkar sem setja upp lifandi jólatré. Nær fimmti hver landsmaður hyggst ekki ætla að setja upp jólatré í ár en fjöldi jólatrjáalausra hefur nær tvöfaldast frá því að mælingar MMR á jólahaldi landsmanna hófust árið 2010.

Alls kváðust 56% landsmanna ætla að setja upp gervitré yfir hátíðarnar en hlutfall þeirra hefur aukist um 6 prósentustig frá upphafi mælinga. Hlutfall þeirra sem kváðust ætla að setja upp lifandi tré hefur minnkað um 15 prósentustig frá desember 2010 og mældist nú 27%. Sem áður segir hefur hlutfall þeirra sem hyggjast ekki setja upp jólatré aukist yfir síðasta áratug en 17% segjast ekki ætla að setja upp tré þetta árið, samanborið við 9% í könnun ársins 2010.

 

1912 JólatréSpurt var: „Verður jólatré á þínu heimili í ár?“.
Svarmöguleikar voru: Já - lifandi tré, já – gervitré, nei og veit ekki/vil ekki svara.
Samtals tóku 98,3% afstöðu til spurningarinnar.

 

Munur eftir lýðfræðihópum
Þegar litið er til bakgrunns svarenda má sjá að konur (60%) reyndust líklegri en karlar (52%) til að segjast ætla að vera með gervitré á sínum heimilum um jólin. Karlar (20%) reyndust hins vegar líklegri til að segjast ekki ætla að vera með jólatré heldur en konur (13%).

Hlutfall þeirra sem kváðust ætla að vera með lifandi tré minnkaði með auknum aldri en 31% svarenda á aldrinum 18-29 ára kváðust munu verða með lifandi tré á sínum heimilum, samanborið við 25% þeirra 68 ára og eldri. Hlutfall þeirra sem kváðust ekki ætla að setja upp jólatré í ár jókst hins vegar með auknum aldri, frá 14% svarenda í yngsta aldurshópi (18-29 ára) til 22% svarenda í þeim elsta (68 ára og eldri).

Þá reyndust landsbyggðarbúar (58%) líklegri til að segjast ætla að vera með gervitré á sínum heimilum heldur en svarendur af höfuðborgarsvæðinu (55%). Íbúar höfuðborgarsvæðisins (18%) reyndust hins vegar líklegri en þau af landsbyggðinni (15%) til að segjast ekki ætla að vera með jólatré í ár.

 

1912 Jólatré x

Ef litið er til stjórnmálaskoðana má sjá að stuðningsfólk Viðreisnar (41%), Samfylkingar (38%) og Vinstri-grænna (36%) reyndust líklegust til að segjast munu hafa lifandi jólatré í ár en stuðningsfólk Framsóknarflokks (65%) og Miðflokks (59%) reyndust líklegust til að segjast ætla að notast við gervitré. Þá reyndist stuðningsfólk Pírata (26%) líklegast til að segjast ekki ætla að hafa jólatré á heimilum sínum í ár.

 

1912 Jólatré x2

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1.014 einstaklingar á aldrinum 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 13.-19. desember 2019

Eldri kannanir sama efnis:
2018 desember: Yfir helmingur heimila með gervijólatré í ár
2017 desember: Fleiri gervitré í stofum landsmanna en lifandi tré
2016 desember: Gervitré vinsælli heldur en lifandi tré
2015 desember: Gervitrén vinsælust meðal Íslendinga
2014 desember: Færri með lifandi jólatré í ár
2012 desember: Vinstri-græn með lifandi jólatré en sjálfstæðis- og framsóknarfólk með gervitré
2011 desember: Mikill meirihluti hefur jólatré á sínu heimili
2010 desember: Fleiri hafa gervijólatré heldur en lifandi tré um jólin