Forseti Íslands

|

bessastadirMMR kannaði stuðning almennings við þá einstaklinga sem hafa lýst yfir framboði til komandi forsetakosninga. Af þeim sem tóku afstöðu voru 44,5% sem sögðust myndu kjósa Ólaf Ragnar Grímsson og 36,9% sem sögðust ætla að kjósa Þóru Arnórsdóttur. Þá voru 10,1% þeirra sem tóku afstöðu sem lýstu yfir stuðningi við Ara Trausta Guðmundsson, 4,6% vildu kjósa Herdísi Þorgeirsdótur, 2,0% Andreu J. Ólafsdóttur og 1,9% Hannes Bjarnason.

Niðurstaðan er því að tæpum átta prósentustigum munar á fylgi Ólafs Rangars og Þóru, sem er marktækur munur. Breytingar á fylgi einstakra frambjóðenda frá síðustu könnun eru þó innan vikmarka.


1206 mmr forseti 01Spurt var: „Eftirfarandi einstaklingar hafa lýst yfir framboði til embættis forseta Íslands. Hvert þeirra myndir þú kjósa ef kosið yrði til forseta í dag?“ Svarmöguleikar voru nöfn ofangreindra frambjóðenda (að Ástþóri Magnússyni undanskildum), birt í tilviljunarkenndri röð, ásamt: Skila auðu, myndi ekki kjósa, veit ekki/óákveðinn og vil ekki svara. Fjöldi þeirra sem tók afstöðu til spurningarinnar var 80,9% , aðrir svöruðu „skila auðu“ (3,4%), „myndi ekki kjósa“ (1,9%), „veit ekki/óákveðin(n)“ (11,9%) og „vil ekki svara“ (1,9%).

Mikill munur á stuðningi við frambjóðendur eftir stuðningi við stjórnmálaflokka

Sem fyrr reyndist töluverður munur á afstöðu fólks eftir því hvaða stjórnmálaflokka það sagðist styðja væri gengið til kosninga nú (og fer vaxandi frá fyrri könnunum). Þannig voru 67,2% framsóknarmanna, 63,7% sjálfstæðismanna og 45,7% stuðningsfólks Samtöðu sem sögðust kjósa Ólaf Ragnar. Á hinn bóginn voru 74,5% samfylkingarfólks, 59,5% Vinstri-grænna og 65,3% stuðningsfólks Bjartrar framtíðar sem sagðist vilja kjósa Þóru. Þá voru 62,0% þeirra sem sögðust styðja ríkisstjórnina sem jafnframt sögðust kjósa Þóru. Á móti voru 57,8% þeirra sem sögðust andvígir ríkisstjórninni sem sögðust vilja kjósa Ólaf Ragnar.

1206 mmr forseti 02

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1816 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára
Dagsetning framkvæmdar: 13.-19. júní 2012

Eldri kannanir sama efnis:
2012 Maí: MMR Könnun um fylgi við forsetaframbjóðendur
2012 Maí: MMR Könnun um fylgi við forsetaframbjóðendur

Niðurstöðurnar á PDF:
pdf1206_mmr_tilkynning_forsetakosningar.pdf

Notkun heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er getið.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.

 

Þróun milli mælinga:

Ekki var spurt um traust til Landsdóms í fyrri mælingum.