MMR kannaði stuðning almennings við þá frambjóðendur sem þegar hafa lýst yfir framboði til komandi forsetakosninga. Af þeim sem tóku afstöðu voru 43,4% sem sögðust myndu kjósa Þóru Arnórsdóttur og 41,3% sögðust myndu kjósa Ólaf Ragnar Grímsson. Munurinn á fylgi Þóru og Ólafs Ragnars er innan vikmarka. Þá voru 8,9% þeirra sem tóku afstöðu sem lýstu yfir stuðningi við Ara Trausta Guðmundsson. Aðrir frambjóðendur voru nefndir af 6,4% svarenda samanlagt.
Mikill munur á stuðningi við frambjóðendur eftir stuðningi við stjórnmálaflokka
Töluverður munur reyndist á afstöðu fólks eftir því hvaða stjórnmálaflokka það sagðist styðja (væri gengið til kosninga nú). Þannig voru 52,4% framsóknarmanna og 62,2% sjálfstæðismanna sem sögðust kjósa Ólaf Ragnar en 72,7% samfylkingarfólks og 62,6% Vinstri-grænna sagðist vilja kjósa Þóru. Þá voru 66,7% þeirra sem sögðust styðja ríkisstjórnina sem jafnframt sögðust kjósa Þóru. Á móti voru 53,9% þeirra sem sögðust andvígir ríkisstjórninni sem sögðust vilja kjósa Ólaf Ragnar.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 972 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 10.-15. maí 2012
Niðurstöðurnar á PDF: 1205_mmr_tilkynning_forsetakosningar.pdf
Notkun heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er getið.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.
Þróun milli mælinga:
Ekki var spurt um traust til Landsdóms í fyrri mælingum.