Færri hyggjast borða hangikjöt á jóladag heldur en í fyrra en neysla á fiski og öðru sjávarfangi eykst. Þetta kemur fram í nýlegri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 5. til 11. desember 2018. Kváðust 69% svarenda ætla að borða hangikjöt sem aðalrétt á jóladag, 9% hamborgarahrygg, 4% kalkún, 4% lambakjöt annað en hangikjöt og 3% grænmetisfæði. Þá ætla 2% að neyta fisks eða annars sjávarfangs í aðalrétt á jóladag en hlutfallið er það hæsta sem mælst hefur frá því að mælingar MMR hófust árið 2010. Að lokum kváðust 10% svarenda hafa hug á því að borða annars konar mat en nefndur var hér á undan.
Spurt var: „Hvað er líklegast að þú munir borða sem aðalrétt á jóladag?“
Svarmöguleikar voru: Fiskur/sjávarfang, gæs, grænmetisfæði, hangikjöt, hamborgarhryggur, hreindýrakjöt, kalkúnn, kjúklingur,
lambakjöt (annað en hangikjöt), nautakjöt, rjúpur, svínakjöt (annað en hamborgarhryggur), önd, annað kjöt, annað og veit ekki/vil ekki svara.
Svarhlutfall var 90,9%.
Kynslóðabreytingar
Hangikjötið reyndist falla hvað helst í kramið hjá svarendum á aldrinum 50-67 ára en 76% þeirra kváðust ætla að borða hangikjöt sem aðalrétt á jóladag, samanborið við 62% þeirra á aldrinum 18-29 ára. Hamborgarahryggurinn átti mest upp á borð hjá eldri svarendum en þeim yngri en 19% þeirra 68 ára og eldri kváðust ætla að fá sér hamborgarahrygg. Þá kváðust 6% þeirra 18-29 ára ætla að gæða sér á grænmetisfæði en 13% þeirra 30-49 ára kváðust ætla að borða annars konar mat sem aðalrétt á jóladag.
Svarendur af landsbyggðinni voru líklegri til að segjast ætla að borða hangikjöt (74%) eða hamborgarahrygg (11%) heldur en þeir af höfuðborgarsvæðinu. Íbúar höfuðborgarsvæðisins kváðust aftur á móti líklegri til að borða grænmetisfæði (5%) eða annars konar mat en þann sem hér er upptalinn (11%) heldur en landsbyggðarbúar.
Hangikjötið nýtur meiri vinsælda sem aðalréttur á jóladag meðal stuðningsfólks Flokks fólksins (80%) heldur en á meðal stuðningsfólks annarra flokka. Annað lambakjöt reyndist einnig vinsælla á meðal stuðningsfólks Flokks fólksins en 16% þeirra kváðust ætla að borða lambakjöt annað en hangikjöt á aðfangadagskvöld. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Sjálfstæðisflokkinn sögðust 13% ætla að borða hamborgarahrygg sem aðalrétt á jóladag. Grænmetisfæði verður hvað helst á borðum hjá stuðningsfólki Viðreisnar (15%) en stuðningsfólk Vinstri grænna (13%) reyndist líklegra en stuðningsmenn annarra flokka til að ætla að borða annað en ofantalið.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 975 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 5.-11. desember 2018
Eldri kannanir sama efnis:
2017 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á jóladag
2016 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á jóladag
2015 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á jóladag
2014 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á jóladag
2013 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á jóladag
2012 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á jóladag
2011 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á jóladag
2010 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á jóladag