Samfélagsmál

|

Töluverð andstaða reyndist gegn innheimtu veggjalda til að standa straum af rekstri þjóðvega á Íslandi, samkvæmt könnun MMR sem framkvæmd var dagana 13. til 19. apríl 2018. Alls sögðust 50% svarenda andvígir innheimtu slíkra gjalda en 31,4% hlynntir henni. Stuðningur við innheimtu veggjalda hefur þó aukist lítillega (um 6 prósentustig) á milli ára en 25,4% svarenda kváðust hlynntir slíkri gjaldtöku í könnun MMR frá apríl 2017. Hlutfall andvígra hefur að sama skapi minnkað um tæp 6 prósentustig á milli ára. 

0805 VegatollarSpurt var: „Almennt séð, hversu fylgjandi eða andvíg(ur) ert þú innheimtu veggjalda (þ.e. vegatolla) til að standa straum af rekstri þjóðvega á Íslandi?
- með veggjöldum (vegatollum) er átt við rukkun fyrir notkun ákveðinna vega“
Svarmöguleikar voru: „Mjög andvíg(ur)“, „Frekar andvíg(ur)“, „Hvorki fylgjandi né andvíg(ur)“, „Frekar fylgjandi“, „Mjög fylgjandi“, „Veit ekki“ og „Vil ekki svara“.
Samtals tóku 95,5% afstöðu til spurningarinnar.
 

Munur eftir lýðfræðihópum
Lítill munur var á afstöðu eftir kyni og búsetu svarenda. Andstaða við innheimtu veggjalda var minnst á meðal svarenda á aldrinum 18-29 ára (41%) en þeir lýstu einnig í mestum mæli yfir stuðningi við slíka innheimtu (36%). Mest var andstaðan á meðal svarenda á aldrinum 30-49 ára (56%) og 50-67 ára (51%). Stuðningur við innheimtu veggjalda jókst með aukinni menntun og auknum heimilistekjum.

Þegar litið var til stjórnmálaskoðana mátti sjá nokkra skiptingu á afstöðu svarenda. Stuðningsfólk Miðflokks (63%), Flokks fólksins (63%) og Pírata (60%) kváðu mesta andstöðu gegn innheimtu veggjalda en alls sögðust rúm 52% stuðningsfólks Flokks fólksins mjög andvíg slíkum gjöldum. Mestan stuðning við innheimtu veggjalda var að finna á meðal stuðningsfólks Viðreisnar (47%) og Sjálfstæðisflokks (45%).

0805 Vegatollar x

 

MMR könnun 2017: Andstaða við hugmyndina um innheimtu veggjalda

MMR könnun 2011: Andstaða við veggjöld

Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 910 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 13. til 19. apríl 2018