Samfélagsmál

|

MMR kannaði nýlega hvort Íslendingar ætluðu að ferðast innanlands eða utan í sumarfríinu. Hlutfall þeirra sem ætluðu að ferðast eingöngu innalands í sumarfríinu mældist örlítið hærra en árið 2016 eða 37% samaborið við 36% árið 2016. Sömu sögu var að segja um hlutfall þeirra sem ætluðu að ferðast eingöngu utanlands í sumarfríinu en það var 15% samaborið við 14% árið 2016. Þeir Íslendingar sem ætluðu bæði að ferðast innlands sem og utan í sumarfríinu hækkaði upp í 39% samanborið við 35% árið 2016.

Á heildina litið sögðust 91% Íslendinga, 18 ára og eldri, ætla að ferðast í sumarfríi sínu, hvort sem það væri innanlands eða utan. Þetta er aukning frá árinu 2016 þegar rúm 85% sögðust ætluðu að ferðast í sumarfríinu.

1706 ferdalog01 

Spurt var: Ætlar þú að ferðast innanlands eða utan í sumarfríinu?
Svarmöguleikar voru: Já, innanlands; Já, utanlands; Já, bæði innanlands og utanlands; Nei, ætla ekki að ferðast neitt.
Samtals tóku 93,5% afstöðu til spurningarinnar.

Munur á ferðahögum Íslendinga eftir búsetu, heimilistekjum, aldri og stjórnmálaskoðunum

Þeir sem búsettir voru á landsbyggðinni (44%) voru töluvert líklegri en þeir sem búsettir voru á höfuðborgarsvæðinu (33%) til þess að ferðast innanlands í sumarfríi sínu. Aftur á móti voru þeir sem búsettir voru á höfuðborgarsvæðinu (92%) líklegri en þeir sem búsettir voru á landsbyggðinni (89%) til að ferðast bæði innan- og utanlands.

Því hærri sem heimilistekjur svarenda voru því líklegri voru þeir til að segjast ætla að ferðast, hvort sem það var innan- eða utanlands eða bæði. Þannig sögðust 85% þeirra sem höfðu heimilistekjur undir 400 þúsund ætla að ferðast í sumarfríinu á meðan 95% þeirra með sem höfðu milljón eða meira í heimilistekjur sögðust ætla að ferðast í sumarfríinu. Jafnframt kom í ljós að aldurshópurinn 18-29 ára var líklegri en aðrir aldurshópar til að ferðast bæði innan- og utanlands eða 94%.

Það reyndist einnig munur á ferðahögum eftir stjórnmálaskoðunum. Þar kom í ljós að stuðningsfólk Vinstri grænna var sá hópur sem líklegastur var til að ferðast einungis innanlands í sumarfríi sínu eða 47%. Þeir hópar sem reyndust ólíklegastir til að ferðast utanlands í sumarfríi sínu voru Vinstri græn, Píratar og Viðreisn, allir jafnir með 10%. Hins vegar voru stuðningsfólk Samfylkingarinnar líklegust til að fara erlendis í sumarfrí eða tæp 19%.

1706 ferdalog02

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 974 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 6. til 14. júní 2017

Eldri kannanir sama efnis:
2016 Júlí  Könnun MMR á ferðahögum Íslendinga í sumarfríinu
2015 Júlí  Könnun MMR á ferðahögum Íslendinga í sumarfríinu
2014 Júní Könnun MMR á ferðahögum Íslendinga í sumarfríinu
2013 Júní Könnun MMR á ferðahögum Íslendinga í sumarfríinu
2012 Júní Könnun MMR á ferðahögum Íslendinga í sumarfríinu
2011 Júní Könnun MMR á ferðahögum Íslendinga í sumarfríinu