MMR kannaði nýlega hvort Íslendingar ætluðu að ferðast innanlands eða utan í sumarfríinu. Íslendingar sögðust í auknum mæli ætla að ferðast til útlanda í sumarfríinu á kostnað ferðalaga innanlands. Ekki hafa fleiri sagst ætla að ferðast utanlands í sumarfríinu frá því að mælingar hófust í júní 2011. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 49,6% ætla að ferðast utanlands í sumarfríinu og þar af sögðust 14,4% eingöngu ætla að ferðast utanlands. Til samanburðar sögðust 35,2% ætla að ferðast utanlands árið 2013 og þar af sögðust 7,1% eingöngu ætla að ferðast utanlands sama ár.
Þeim sem sögðust ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu hefur fækkað frá því 2013 þegar 82,8% sögðust ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu, borið saman við 70,9% nú. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 14,7% ekki ætla að ferðast neitt í sumarfríinu, borið saman við 16,0% í fyrra.
Spurt var: Ætlar þú að ferðast innanlands eða utan í sumarfríinu? Svarmöguleikar voru: Já, innanlands, Já, utanlands, Já, bæði innanlands og utanlands, Nei, ætla ekki að ferðast neitt og Veit ekki/vil ekki svara.
Samtals tóku 95,3% afstöðu til spurningarinnar
Munur á ferðahögum Íslendinga eftir búsetu, heimilistekjum og stjórnmálaskoðunum
Þeir sem að búsettir voru á höfuðborgarsvæðinu voru líklegri til að segjast ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu en þeir sem búsettir voru á landsbyggðinni. Þannig sögðust 73,3% þeirra sem búsett voru á höfuðborgarsvæðinu að þau ætluðu að ferðast innanlands í sumarfríinu, borið saman við 66,5% þeirra sem búsett voru á landsbyggðinni.
Þeir sem höfðu hærri heimilistekjur voru líklegri til að segjast ætla að ferðast bæði innan og utanlands í sumarfríinu en þeir sem höfðu lægri tekjur. Þannig sögðust um 57,1% þeirra sem höfðu milljón eða meira á mánuði í heimilistekjur ætla að ferðast bæði innan- og utanlands sumarfríinu, borið saman við um 37,5% þeirra sem höfðu heimilistekjur undir 250 þúsund á mánuðir.
Einnig reyndist nokkur munur á ferðahögum eftir stjórnmálaskoðunum. Þeir sem að sögðust styðja Framsóknarflokkinn voru líklegastir til að ferðast í sumarfríinu á meðan þeir sem sögðust styðja Samfylkinguna voru ólíklegust til að ferðast í sumarfríinu. Af þeim sem studdu Framsóknarflokkinn voru aðeins 4,8% sem sögðust ekki ætla að ferðast neitt í sumarfríinu, borið saman við 23,1% þeirra sem studdu Samfylkinguna.
Þeir sem að studdu Bjarta framtíð voru líklegastir til að segjast ætla að ferðast innanlands í sumar en þeir sem studdu Sjálfstæðisflokkinn voru ólíklegastir. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Bjarta framtíð sögðust 81,1% ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu, borið saman við 69,5% þeirra sem studdu Sjálfstæðisflokkinn.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 906 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 15. til 22. júlí 2016
Eldri kannanir sama efnis:
2015 Júlí Könnun MMR á ferðahögum Íslendinga í sumarfríinu
2014 Júní Könnun MMR á ferðahögum Íslendinga í sumarfríinu
2013 Júní Könnun MMR á ferðahögum Íslendinga í sumarfríinu
2012 Júní Könnun MMR á ferðahögum Íslendinga í sumarfríinu
2011 Júní Könnun MMR á ferðahögum Íslendinga í sumarfríinu
Þróun milli mælinga:
Ekki var spurt um traust til Landsdóms í fyrri mælingum.