MMR kannaði á tímabilinu 31.ágúst til 3.september ánægju Íslendinga með veðrið í sumar. Veðrið í sumar virtist leika vel við þá sem nutu sumarsins á Suður-og Suðvesturhluta landsins.
Nokkur munur var á ánægju fólks með veðrið á Íslandi í sumar eftir búsetu. Þeir sem voru búsettir í Reykjavík voru ánægðastir með veðrið í sumar en þeir sem voru búsettir á Norðaustur- og Austurlandi voru síst ánægðir með veðrið í sumar. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 73,0% þeirra sem búsett voru í Reykjavík vera ánægð með veðrið í sumar, 71,8% þeirra sem búsett voru á Suðurlandi, 71,4% þeirra sem búsett voru á nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur, 40,3% þeirra sem búsett voru á Norðvestur- og Vesturlandi og 14,0% þeirra sem búsett voru á Norðaustur- og Austurlandi sögðust vera ánægð með veðrið í sumar.
Hlutfall þeirra sem sögðust ánægð með veðrið í sumar eftir landshlutum
-Þeir sem tóku afstöðu-

Landakort fengið af vef Landmælinga Íslands
Spurt var: „Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með veðrið á Íslandi í sumar.
Svarmöguleikar voru mjög ánægð(ur), frekar ánægð(ur), frekar óánægð(ur), mjög óánægð(ur), á ekki við og veit ekki/vil ekki svara.
Samtals tóku 96,5% afstöðu til spurningarinnar.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1023 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 31.ágúst til 3.september 2015
Eldri kannanir sama efnis:
2014 ágúst: MMR könnun á ánægju íslendinga
2013 ágúst: MMR könnun á ánægju íslendinga
2012 september: MMR könnun á ánægju íslendinga
2011 september: MMR könnun á ánægju íslendinga
Þróun milli mælinga:
Ekki var spurt um traust til Landsdóms í fyrri mælingum.