MMR kannaði nýlega hvort Íslendingar ætluðu að ferðast innanlands eða utan í sumarfríinu. Færri sögðust ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu í ár en í fyrra. Af þeim sem tóku afstöðu til spurningarinnar sögðust 73,8% ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu, þar af sögðust 42,4% aðeins ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu. Til samanburðar sögðust 83,1% ætla að ferðast innanlands árið 2014 og 52,1% sögðust eingöngu ætla að ferðast innanlands sama ár.
Fleiri sögðust ætla að ferða utanlads í sumarfríinu í ár en í fyrra. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 41,6% ætla að ferðast utanlands í sumarfríinu og 10,3% sögðust eingöngu ætla að ferðast utanlands. Til samanburðar sögðust 38,2% ætla að ferðast utanlands árið 2013 og 7,2% sagðist eingöngu ætla að ferðast utanlands sama ár.
Fleiri sögðust ekki ætla að ferðast neitt í sumarfríinu en í fyrra. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 16,0% ekki ætla að ferðast neitt í sumarfríinu, borið saman við 9,7% í fyrra.
Spurt var: Ætlar þú að ferðast innanlands eða utan í sumarfríinu? Svarmöguleikar voru: Já, innanlands, Já, utanlands, Já, bæði innanlands og utanlands, Nei, ætla ekki að ferðast neitt og Veit ekki/vil ekki svara.
Samtals tóku 95,7% afstöðu til spurningarinnar
Munur á ferðahögum Íslendinga eftir búsetu, heimilistekjum og stjórnmálaskoðunum
Þeir sem að búsettir voru á höfuðborgarsvæðinu voru líklegri til að segjast ætla að ferðast erlendis í sumarfríinu en þeir sem búsettir voru á landsbyggðinni. Þannig sögðust 44,8% þeirra sem búsett voru á höfuðborgarsvæðinu að þau ætluðu að ferðast erlendis í sumarfríinu, borið saman við 36,7% þeirra sem búsett voru á landsbyggðinni.
Þeir sem höfðu 600 þúsund eða meira í heimilistekjur voru líklegri til að segjast ætla að ferðast í sumarfríinu en þeir sem höfðu heimilistekjur undir 600 þúsund. Þannig sögðust um 90% þeirra sem höfðu meira en 600 þúsund á mánuði í heimilistekjur ætla að ferðast í sumarfríinu, borið saman við um 80% þeirra sem höfðu heimilistekjur á bilinu 250-599 þúsund á mánuðir og 67% þeirra sem höfðu heimilistekjur undir 250 þúsund á mánuði
Einnig reyndist nokkur munur á ferðahögum eftir stjórnmálaskoðunum. Þeir sem að sögðust styðja Samfylkinguna og Pírata voru líklegastir til að segjast ætla ferðast innanlands í sumar en stuðningsfólk Bjartrar framtíðar var líklegast til að segjast ætla að ferðast erlendis í sumarfríinu. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Samfylkinguna sögðust 82,0% ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu og 78,3% þeirra sem studdu Pírata. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Bjarta framtíð sögðust 55,0% ætla að ferðast erlendis í sumarfríinu.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 956 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 22. til 30. júlí 2015
Eldri kannanir sama efnis:
2014 Júní Könnun MMR á ferðahögum Íslendinga í sumarfríinu
2013 Júní Könnun MMR á ferðahögum Íslendinga í sumarfríinu
2012 Júní Könnun MMR á ferðahögum Íslendinga í sumarfríinu
2011 Júní Könnun MMR á ferðahögum Íslendinga í sumarfríinu
Þróun milli mælinga:
Ekki var spurt um traust til Landsdóms í fyrri mælingum.