MMR kannaði á dögunum traust almennings til helstu stofnana á sviði réttarfars og dómsmála. Traust til flestra stofnana sem könnunin náði til hefur dregist saman frá síðustu könnun í nóvember 2013. Þannig sögðust færri bera traust til Landhelgisgæslunnar, ríkislögreglustjóra, sérstaks saksóknara, ríkissaksóknara, Hæstaréttar, héraðsdómstólanna og dómskerfisins í heild.
Af þeim stofnunum sem mældar voru naut Landhelgisgæslan mest trausts. Alls sögðust 71,4,0% þeirra sem tóku afstöðu bera mikið traust til hennar, borið saman við 82,0% í nóvember 2013.
Traust á dómskerfinu í heild hefur dregist nokkuð saman og sögðust 28,9% bara mikið traust til þess nú, borið saman við 38,1% í nóvember 2013.
34,3% sögðust bera mikið traust til hæstaréttar nú, borið saman við 46,5% í fyrra og 31,2% sögðust bera mikið traust til héraðsdómstólanna nú, borið saman við 39,3% í fyrra.
Í könnuninni nú mældist ríkislögreglustjóri njóta mikilst trausts 46,3% þeirra sem tóku afstöðu, borið saman við 55,1% í nóvember 2013.
Traust til sérstaks saksóknara mældist 39,3% nú, borið saman við 46,9% í fyrra og traust til ríkissaksóknara mældist 35,0% nú, borið saman við 44,8% í fyrra.
Ómarktækur munur var á trausti til Fangelsismálastofnunar og Útlendingastofu frá því í fyrra.
Spurt var: Hversu mikið eða lítið traust berð þú til eftirfarandi aðila. Svarmöguleikar voru: Mjög lítið traust, frekar lítið traust, hvorki mikið né lítið traust, frekar mikið traust, mjög mikið traust og veit ekki/vil ekki svara. Niðurstöður sýna fjölda þeirra sem svöruðu annað hvort mjög/frekar mikið eða lítið traust.
Hlutfallstölur eru reiknaðar af heildarfjölda þeirra sem tóku afstöðu til einhverrar stofnunar.
Samtals tóku 96,9% afstöðu til spurningarinnar.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar eldri en 18 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 976
Dagsetning framkvæmdar: 29 október. til 4. nóvember 2014
Eldri kannanir sama efnis:
2013 nóvember: MMR könnun: Traust til stofnana á sviði réttarfars og dómsmála
2012 nóvember: MMR könnun: Traust til stofnana á sviði réttarfars og dómsmála
2011 febrúar: MMR könnun: Traust til stofnana á sviði réttarfars og dómsmála
2010 október: MMR könnun: Traust til stofnana á sviði réttarfars og dómsmála
2009 október: MMR könnun: Traust til stofnana á sviði réttarfars og dómsmála
Notkun heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er getið.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.