MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í Reykjavík.
Gagnaöflun vegna könnunarinnar fór fram á tímabilinu 20. til 23. maí 2014.
Samanlagt fylgi Samfylkingar og Bjartrar framtíðar mælist nú 53,5%.
Fylgi flokkanna sem bjóða fram í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík mældist eftirfarandi: Samfylking 29,5%, Björt framtíð 24,0%, Sjálfstæðisflokkur 21,1%, Vinstri-græn 9,0%, Píratar 8,2%, Framsóknarflokkur og flugvallarvinir 5,3%, Dögun 2,6% og Alþýðufylkingin 0,2%. Yrðu þetta niðurstöður kosninganna myndi Samfylkingin fá fimm borgarfulltrúa, Björt framtíð og Sjálfstæðisflokkur fjóra borgarfulltrúa hvor og Vinstri-græn og Píratar einn fulltrúa hvor.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til borgarstjórnar í Reykjavík í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,0% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (10,1%), myndu skila auðu (3,7%), myndu ekki kjósa (2,3%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,0%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil.
Tengt efni:
2010 júní: Kosningaúrslit í Reykjavík endurspegla könnun MMR nákvæmlega
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Reykvíkingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 477 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 20. til 23. maí 2014