Alþingiskosningar

|

- Fylgi Vinstri grænna dregst saman.
- Fylgi Framsóknarflokks dalar heldur.

Fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 24,1%. Þetta er veruleg aukning frá síðustu könnun þegar fylgi flokksins mældist einungis 16,7%. Síðasta könnun var framkvæmd dagana 20-21 janúar þegar búsáhaldabyltingin stóð sem hæst og tveim dögum áður en tilkynnt var um slit ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Síðasta könnun sýnir því glöggt hve erfið staða Samfylkingarinnar í ríkisstjórnarsamstarfinu var orðin.

     Fylgi Vinstri grænna dalar hins vegar nokkuð milli kannana og mælist nú 23,4% en var 28,5% í síðustu könnun. Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst um tæp 5 prósentustig frá í janúar úr 24,3% í 29% og mælist hann enn á ný stærsti stjórnmálaflokkurinn. Fylgi Framsóknarflokksins dalar heldur og mælist nú 14,9% en var 17,2% í janúar. Fjöldi þeirra sem sagðist myndu kjósa aðra stjórnmálaflokka en buðu fram síðast fækkar úr 7,9% frá í janúar í 6,6% nú.

 

 

 0902_01

Niðurstöðurnar í heild:
 0902_tilkynning_stjornmal.pdf