Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 22,5%, nær óbreytt frá síðustu fylgismælingu MMR. Fylgi Framsóknarflokksins mældist næst mest eða 18,2% og fylgdu Píratar þar á eftir með 12,4% fylgi en fylgi beggja þessara flokka reyndist einnig nær óbreytt frá síðustu mælingu. Fylgi Vinstri-grænna minnkaði um tæp tvö prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 12,1% en fylgi annarra flokka mældist nær óbreytt.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 61,9%, tæplega tveimur prósentustigum hærra en í síðustu könnun þar sem stuðningur mældist 60,0%.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 22,5% og var 22,2% í síðustu mælingu.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 18,2% og mældist 17,5% í síðustu mælingu.
Fylgi Pírata mældist nú 12,4% og mældist 12,4% í síðustu mælingu.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 12,1% og mældist 13,9% í síðustu mælingu.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,6% og mældist 11,1% í síðustu mælingu.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,0% og mældist 8,0% í síðustu mælingu.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 5,6% og mældist 6,2% í síðustu mælingu.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 4,2% og mældist 4,2% í síðustu mælingu.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,0% og mældist 3,7% í síðustu mælingu.
Stuðningur við aðra mældist 1,4% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 89,0% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (1,8%), myndu skila auðu (2,8%), myndu ekki kjósa (1,6%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,8%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 933 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 29. nóvember til 2. desember 2021