Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 22,2%, nær óbreytt frá síðustu fylgismælingu MMR og rúmum tveimur prósentustigum minna en við síðustu Alþingiskosningar. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 17,5%, tæpum tveimur prósentustigum minna en við síðustu mælingu en fylgi Vinstri grænna mældist nú 13,9%, rúmum tveimur prósentustigum meira en í síðustu mælingu. Fylgi Pírata mældist nú 12,4%, nær óbreytt frá síðustu mælingu og fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 11,1%, tæpum tveimur prósentum hærra en í síðustu mælingu. Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,2%, tæpum tveimur prósentustigum minna en í síðustu mælingu og fylgi Miðflokksins mældist nú 4,2%, tæpum tveimur prósentum minna en í síðustu mælingu.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 60,0%, rúmlega tveimur prósentustigum hærra en í síðustu könnun þar sem stuðningur mældist 57,6%.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 22,2% og var 22,1% í síðustu mælingu.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 17,5% og mældist 19,2% í síðustu mælingu.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 13,9% og mældist 11,5% í síðustu mælingu.
Fylgi Pírata mældist nú 12,4% og mældist 11,8% í síðustu mælingu.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 11,1% og mældist 9,5% í síðustu mælingu.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,0% og mældist 8,0% í síðustu mælingu.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,2% og mældist 8,0% í síðustu mælingu.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 4,2% og mældist 6,0% í síðustu mælingu.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 3,7% og mældist 3,3% í síðustu mælingu.
Stuðningur við aðra mældist 0,8% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 89,2% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (1,6%), myndu skila auðu (3,3%), myndu ekki kjósa (1,0%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,8%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 918 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 10. til 15. nóvember 2021