Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 21,1%, tæpum tveimur prósentustigum minna en í síðustu fylgismælingu MMR og rúmum þremur prósentustigum lægra en við síðustu Alþingiskosningar. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 17,9%, tæpu prósentustigi meira en við síðustu kosningar og fylgi Vinstri grænna mældist nú 12,1%, hálfu prósentustigi minna en í kosningunum. Fylgi Pírata mældist nú 11,7%, þremur prósentustigum meira en í síðustu kosningum og fylgi Viðreisnar mældist nú 10,0%, tæpum tveimur prósentum hærra en í kosningunum. Fylgi Flokks fólksins mældist nú 7,8%, rúmu prósentustigi minna en í kosningum og fylgi Miðflokksins mældist nú 3,2%, rúmlega tveimur prósentum minna en í síðustu kosningum.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 57,5%, tæpum sex prósentustigum hærra en í síðustu könnun fyrir kosningar þar sem stuðningur mældist 51,6%.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 21,1% og var 24,4% í síðustu kosningum.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 17,9% og mældist 17,3% í síðustu kosningum.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 12,1% og mældist 12,6% í síðustu kosningum.
Fylgi Pírata mældist nú 11,7% og mældist 8,6% í síðustu kosningum.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,1% og mældist 9,9% í síðustu kosningum.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,0% og mældist 8,3% í síðustu kosningum.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 7,8% og mældist 8,8% í síðustu kosningum.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 5,5% og mældist 4,1% í síðustu kosningum.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 3,2% og mældist 5,4% í síðustu kosningum.
Stuðningur við aðra mældist 0,6% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 90,5% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (1,6%), myndu skila auðu (1,8%), myndu ekki kjósa (2,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,6%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 967 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 12. til 18. október 2021