Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 21,8%, tæpum tveimur prósentustigum hærra en í síðustu fylgismælingu MMR sem lögð var fyrir dagana 15. - 17. september. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 14,3%, tæpum tveimur prósentustigum meira en í síðustu mælingu og fylgi Samfylkingarinnar jókst um rúmt prósentustig og mældist nú 13,9%. Fylgi Vinstri-grænna minnkaði um rúmt prósentustig og mældist nú 11,0% og fylgi Pírata mældist 10,3%, einu og hálfu prósentustigi minna en í síðustu könnun. Fylgi Flokks fólksins mældist 7,3%, tæplega tveimur prósentustigum meira en í síðustu könnun en fylgi Sósíalistaflokks Íslands minnkaði um tvö og hálft prósentustig og mældist nú 6,0%. Fylgi annarra flokka mældist nær óbreytt frá síðustu mælingu.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 51,7%, einu og hálfu prósentustigi meira en í síðustu könnun þar sem stuðningur mældist 50,1%.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 21,8% og mældist 20,3% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 14,3% og mældist 12,7% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,9% og mældist 13,0% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,0% og mældist 12,1% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 10,3% og mældist 11,8% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,1% og mældist 10,7% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 7,3% og mældist 5,6% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 6,0% og mældist 8,6% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 4,7% og mældist 4,6% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 0,6% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 89,7% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (2,4%), myndu skila auðu (3,2%), myndu ekki kjósa (2,2%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (2,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1.014 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 21. til 22. september 2021