Alþingiskosningar

|

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 20,3%, tveimur prósentustigum lægra en í síðustu fylgismælingu MMR sem lögð var fyrir dagana 8. - 10. september. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,0%, rúmu prósentustigi meira en í síðustu mælingu en fylgi Framsóknarflokksins minnkaði um rúmlega tvö prósentustig og mældist nú 12,7%. Fylgi Vinstri-grænna jókst um tæp tvö prósentustig og mældist nú 12,1% og fylgi Pírata mældist 11,8%, tæpum tveimur prósentustigum hærra en í síðustu könnun. Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist 8,6%, tæplega tveimur prósentustigum meira en í síðustu könnun, fylgi Viðreisnar minnkaði um eitt og hálft prósentustig og mældist nú 10,7% og fylgi Miðflokksins minnkaði um eitt og hálft prósentustig og mældist nú 4,6%. Fylgi annarra flokka mældist nær óbreytt frá síðustu mælingu.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 50,1%, nær óbreytt frá síðustu könnun þar sem stuðningur mældist 49,9%.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 20,3% og mældist 22,3% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,0% og mældist 11,6% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 12,7% og mældist 15,0% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 12,1% og mældist 10,5% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 11,8% og mældist 9,9% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,7% og mældist 12,2% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 8,6% og mældist 6,7% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 5,6% og mældist 5,0% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 4,6% og mældist 6,0% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 0,7% samanlagt.

Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 87,6% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (4,1%), myndu skila auðu (3,3%), myndu ekki kjósa (1,8%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,1%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

Þróun yfir tíma

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

Stuðningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1.257 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 15. til 17. september 2021