Alþingiskosningar

|

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 24,9%, prósentustigi hærra en í síðustu fylgismælingu MMR sem lögð var fyrir dagana 18. - 24. ágúst. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 13,3%, tæpu prósentustigi hærra en í síðustu könnun og fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 12,1%, um einu og hálfu prósentustigi hærra en í síðustu könnun. Fylgi Pírata mældist 9,8%, tæpu prósentustigi minna en í síðustu könnun og fylgi Viðreisnar mældist 8,4%, tveimur prósentustigum minna en í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist nær óbreytt frá síðustu mælingu.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 47,7% og minnkaði um rúmt prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 49,1%.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 24,9% og mældist 23,9% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 13,3% og mældist 12,5% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 12,1% og mældist 10,5% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,8% og mældist 10,9% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 9,8% og mældist 10,6% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,4% og mældist 10,4% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 8,1% og mældist 8,7% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 6,6% og mældist 6,2% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,5% og mældist 5,1% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 1,5% samanlagt.

Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 85,5% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (4,5%), myndu skila auðu (5,7%), myndu ekki kjósa (1,7%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (2,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

Þróun yfir tíma

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

Stuðningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 957 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 31. ágúst til 3. september 2021