Alþingiskosningar

|

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,9%, tæpu prósentustigi lægra en í síðustu fylgismælingu MMR sem lögð var fyrir dagana 8. - 14. júlí. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 12,5%, nær óbreytt frá síðustu könnun en fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,5%, tæplega þremur prósentustigum minna en í síðustu könnun og fylgi Pírata mældist 10,6%, einu og hálfu prósentustigi minna en í síðustu könnun. Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,4%, prósentustigi meira en við síðustu könnun, fylgi Miðflokksins mældist 6,2%, um prósentustigi meira en við síðustu könnun og fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist 8,7%, rúmum þremur prósentustigum meira en við síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist nær óbreytt frá síðustu mælingu.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 49,1% og minnkaði um fjögur prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 53,1%.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,9% og mældist 24,6% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 12,5% og mældist 12,9% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,9% og mældist 10,7% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 10,6% og mældist 12,2% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,5% og mældist 13,1% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,4% og mældist 9,4% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 8,7% og mældist 5,6% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 6,2% og mældist 5,2% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 5,1% og mældist 5,1% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 1,1% samanlagt.

Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 82,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,4%), myndu skila auðu (5,4%), myndu ekki kjósa (1,4%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,0%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

Þróun yfir tíma

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

Stuðningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 932 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 18. til 24. ágúst 2021