Alþingiskosningar

|

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 24,6%, tæplu prósentustigi lægra en í síðustu fylgismælingu MMR sem lögð var fyrir dagana 24. júní - 6. júlí. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,1%, tveimur og hálfu prósentu stigi hærra en í síðustu könnun og fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 12,9%, rúmlega hálfu prósentustigum hærra en í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 10,7%, rúmu prósentustigi minna en við síðustu könnun og fylgi Miðflokksins mældist 5,2%, um einu og hálfu prósentustigi minna en við síðustu könnun en fylgi annarra flokka mældist nær óbreytt frá síðustu mælingu.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 53,1% og minnkaði um tæplega tvö prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 54,9%.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 24,6% og mældist 25,4% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,1% og mældist 10,6% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 12,9% og mældist 12,3% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 12,2% og mældist 12,2% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,7% og mældist 11,9% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,4% og mældist 9,1% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 5,6% og mældist 5,3% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 5,2% og mældist 6,6% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 5,1% og mældist 5,5% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 1,2% samanlagt.

Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 83,2% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,1%), myndu skila auðu (4,5%), myndu ekki kjósa (2,1%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,2%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

Þróun yfir tíma

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

Stuðningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 945 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 8. til 14. júlí 2021