Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,4%, tæplega tveimur prósentustigum lægra en í síðustu fylgismælingu MMR sem lögð var fyrir dagana 4. - 14. júní. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 12,3%, rúmlega þremur prósentustigum hærra en í síðustu könnun en fylgi Pírata mældist nú 12,2%, prósentustigi minna en við síðustu könnun. Þá jókst fylgi Viðreisnar um rúmt prósentustig og mældist nú 9,1% en fylgi annarra flokka mældist nær óbreytt frá síðustu mælingu.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 54,9% og jókst um rúmt prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 53,7%.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,4% og mældist 27,0% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 12,3% og mældist 8,8% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 12,2% og mældist 13,1% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,9% og mældist 12,4% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,6% og mældist 11,2% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,1% og mældist 7,8% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 6,6% og mældist 7,3% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 5,5% og mældist 5,5% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 5,3% og mældist 5,3% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 1,2% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 80,2% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,7%), myndu skila auðu (6,1%), myndu ekki kjósa (2,4%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,6%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 2.041 einstaklingur, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 24. júní til 6. júlí 2021