Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 27,0%, rúmlega tveimur prósentustigum hærra en í síðustu fylgismælingu MMR sem lögð var fyrir dagana 25. maí - 1. júní. Fylgi Pírata mældist nú 13,1%, nær óbreytt frá síðustu könnun en fylgi Vinstri grænna jókst um rúmt prósentustig og mældist nú 12,4%. Fylgi Framsóknarflokksins minnkaði um tæplega fjögur prósentustig á milli mælinga og mældist nú 8,8% og fylgi Viðreisnar minnkaði um rúmlega þrjú prósentustig og mældist nú 7,8%. Þá jókst fylgi Flokks fólksins um tæplega þrjú prósentustig og mældist nú 5,5%.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 53,7% og jókst um rúmlega þrjú prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 50,2%.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 27,0% og mældist 24,6% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 13,1% og mældist 13,5% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 12,4% og mældist 11,1% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 11,2% og mældist 10,9% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 8,8% og mældist 12,5% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 7,8% og mældist 11,0% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 7,3% og mældist 6,5% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 5,5% og mældist 2,8% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 5,3% og mældist 5,6% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 1,6% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 82,2% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,3%), myndu skila auðu (5,9%), myndu ekki kjósa (1,8%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,7%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 973 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 4. til 14. júní 2021