Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,6%, sem lætur nærri meðalfylgi flokksins samkvæmt könnunum MMR í apríl síðast liðnum þegar fylgið mældist að jafnaði 25,9% (sveiflaðist frá 23,1% til 28,7%). Sveiflur á fylgi flokksins gefa til kynna að nokkur gerjun eigi sér stað meðal kjósenda nú þegar hyllir undir að faraldrinum taki að ljúka.
Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 13,1%, nær óbreytt frá síðustu könnun en fylgi Framsóknarflokksins jókst um tvö prósentustig og mældist nú 12,6%. Fylgi Pírata jókst um tæp tvö prósentustig á milli mælinga og mældist nú 11,3% og fylgi Viðreisnar jókst um tæp tvö prósentustig og mældist nú 10,6%. Þá minnkaði fylgi Flokks fólksins um tæp tvö prósentustig og mældist nú 3,3%.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 55,1% og minnkaði um rúmt prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 56,2%.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,6% og mældist 28,7% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 13,1% og mældist 12,9% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 12,6% og mældist 10,5% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 11,3% og mældist 9,6% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,9% og mældist 11,3% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,6% og mældist 8,8% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 5,7% og mældist 6,0% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 5,7% og mældist 5,8% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 3,3% og mældist 4,8% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 1,2% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,9% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,5%), myndu skila auðu (6,3%), myndu ekki kjósa (2,9%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (2,4%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 953 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 7. til 12. maí 2021