Alþingiskosningar

|

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 28,7%, tæplega sex prósentustigum hærra en við síðustu könnun MMR sem framkvæmd var í byrjun apríl 2021. Aukning fylgis Sjálfstæðisflokksins nú endurspeglar á vissan hátt þróun á fylgi flokksins við upphaf kórónuveirufaraldursins þegar það tók álíka kipp í fylgismælingu MMR í mars 2020, stuttu eftir að fyrsta tilfelli COVID-19 greindist á Íslandi.
Fylgi Vinstri-grænna jókst um tæp þrjú prósentustig frá síðustu könnun og mældist nú 12,9% en fylgi Framsóknarflokksins minnkaði um eitt prósentustig og mældist nú 10,5%.

Fylgi Samfylkingarinnar minnkaði um rúm fjögur prósentustig á milli mælinga og mældist nú 11,3% og fylgi Pírata minnkaði um tæp fjögur prósentustig og mældist nú 9,6%.
Þá jókst fylgi Sósíalistaflokks Íslands um tvö prósentustig og mældist nú 6,0% en fylgi Miðflokksins minnkaði um rúmt prósentustig og mældist nú 5,8%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 56,2% og jókst um tæplega fjögur prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 52,5%.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 28,7% og mældist 23,1% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 12,9% og mældist 10,1% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 11,3% og mældist 15,4% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,5% og mældist 11,5% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 9,6% og mældist 13,2% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,8% og mældist 10,0% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 6,0% og mældist 4,0% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 5,8% og mældist 6,9% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,8% og mældist 4,7% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 1,6% samanlagt.

Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,3% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,2%), myndu skila auðu (5,0%), myndu ekki kjósa (2,2%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,2%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

Þróun yfir tíma

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

Stuðningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 946 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 21. til 28. apríl 2021