Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,1%, rúmlega tveimur prósentustigum hærra en við síðustu könnun MMR sem framkvæmd var í mars 2021. Fylgi Samfylkingarinnar jókst um tæplega tvö prósentustig og mældist 15,4% og fylgi Pírata jókst um tæplega tvö prósentustig og mældist nú 13,2%. Þá minnkaði fylgi Framsóknarflokksins um rúmt prósentustig og mældist nú 11,5%, fylgi Vinstri-grænna minnkaði um tæplega tvö prósentustig og mældist nú 10,1% og fylgi Miðflokksins minnkaði um rúmlega tvö prósentustig og mældist nú 6,9%.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 52,5% og minnkaði um rúmt prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 53,7%.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,1% og mældist 21,0% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 15,4% og mældist 13,8% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 13,2% og mældist 11,5% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 11,5% og mældist 12,7% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,1% og mældist 11,7% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,0% og mældist 10,0% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 6,9% og mældist 9,3% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,7% og mældist 5,1% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,0% og mældist 3,8% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 1,0% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,9% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,2%), myndu skila auðu (5,7%), myndu ekki kjósa (2,2%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,0%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 940 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 29. mars til 7. apríl 2021