Alþingiskosningar

|

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 21,0%, rúmlega prósentustigi lægra en við síðustu könnun MMR sem framkvæmd var í febrúar 2021. Fylgi Samfylkingarinnar jókst um tæpt prósentustig og mældist 13,8% og fylgi Framsóknarflokksins jókst um rúmt prósentustig og mældist nú 12,7%. Þá lækkaði fylgi Vinstri-grænna um tæplega tvö prósentustig og mældist nú 11,7%, fylgi Miðflokksins jókst um rúmt prósentustig og mældist nú 9,3% og fylgi Flokks Fólksins jókst um eitt og hálft prósentustig og mældist nú 5,1%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 53,7% og minnkaði um tæpt prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 54,5%.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 21,0% og mældist 22,2% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,8% og mældist 13,1% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 12,7% og mældist 11,4% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,7% og mældist 13,5% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 11,5% og mældist 11,4% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,0% og mældist 10,6% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 9,3% og mældist 8,0% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 5,1% og mældist 3,6% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 3,8% og mældist 4,1% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 1,0% samanlagt.

2004 2 Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,4% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (8,6%), myndu skila auðu (5,3%), myndu ekki kjósa (1,0%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,7%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

2004 2 Fylgi timi

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

2004 2 Studningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 951 einstaklingur, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 5. til 10. mars 2021