94% landsmanna hafa þegið eða hyggjast þiggja bólusetningu gegn kórónuveirunni COVID-19. Af þeim sem höfðu eða hugðust afþakka bólusetningu voru 5% sem sögðust afþakka bólusetningu með bólefni AstraZeneca ef þeim yrði boðin bólusetning með bóluefninu. Færri sögðust hafa eða ætla að afþakka bóluefni frá Moderna (3%), Janssen (3%) og Pfizer (2%). Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var í mars 2021.
Spurt var: „Fyrir liggur að landsmönnum muni standa til boða bólusetningar gegn kórónuveirunni COVID-19 á komandi mánuðum með bólefnum framleiddum af AstraZeneca, Moderna, Pfizer-BioNTech og Janssen.
Hefur þú eða hyggst þú afþakka bólusetningu með bóluefni frá einhverjum af eftirfarandi framleiðendum?“
Svarmöguleikar voru: „Afþakka Pfizer-BioNTech“, „Afþakka Moderna“, „Afþakka AstraZeneca“, „Afþakka Janssen“, „Nei, ég hef ekki og mun ekki afþakka nein bóluefni sem standa til boða“, „Veit ekki“ og „Vil ekki svara“.
Samtals tóku 89,5% afstöðu til spurningarinnar.
Munur eftir lýðfræðihópum
Lítill munur reyndist á afstöðu svarenda eftir kyni eða búsetu. Svarendur 68 ára og eldri reyndust líklegastir til að segjast munu þiggja eða hafa þegið bóluefni (97%) en svarendur á aldrinum 18-29 ára ólíklegastir (93%). Lítill munur var þó á milli aldurshópa á hlutföllum þeirra sem kváðust ætla að afþakka einstök bóluefni.
Öllu meiri mun var þó að finna á svörun eftir stjórnmálaafstöðu svarenda. Stuðningsfólk Samfylkingarinnar (99%), Vinstri-grænna (98%) og Sjálfstæðisflokksins (95%) reyndist líklegast allra til að þiggja bóluefni en stuðningsfólk Miðflokksins (77%) ólíklegast.
Nokkurn breytileika var að sjá á hlutfalli þeirra sem kváðust hafa eða ætla að afþakka bóluefni frá einsökum framleiðendum. Alls kváðust 17% stuðningsfólks Miðflokksins, 8% stuðningsfólks Pírata, 7% stuðningsfólks Framsóknar og 6% stuðningsfólks Viðreisnar hafa eða ætla að afþakka bóluefni AstraZeneca en stuðningsfólk Miðflokksins (10%) og Pírata (7%) reyndist einnig líklegra en aðrir til að hafa eða ætla að afþakka bóluefni Janssen. Þá kváðust 5% stuðningsfólks Pírata og Framsóknar og 7% stuðningsfólks Miðflokksins hafa eða ætla að afþakka bóluefni Moderna og 5% stuðningsfólks Pírata og Miðflokksins og 4% stuðningsfólks Framsóknar kváðust ætla að afþakka bóluefni Pfizer.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 951 einstaklingur
Dagsetning framkvæmdar: 5. til 10. mars 2021