Alþingiskosningar

|

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 22,2%, rúmlega tveimur prósentustigum lægra en við síðustu könnun MMR sem framkvæmd var í janúar 2021. Fylgi Vinstri grænna jókst um tæp þrjú prósentustig og mældist 13,5% en fylgi Samfylkingarinnar lækkaði um tvö og hálft prósentustig og mældist nú 13,1%. Þá jókst fylgi Framsóknarflokksins um rúmlega tvö prósentustig og mældist nú 11,4% og fylgi Viðreisnar jókst um tæp tvö prósentustig og mældist nú 10,6%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 54,5% og jókst um tæplega fjögur prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 50,9%.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 22,2% og mældist 24,4% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 13,5% og mældist 10,9% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,1% og mældist 15,6% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 11,4% og mældist 12,3% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 11,4% og mældist 9,1% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,6% og mældist 8,8% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 8,0% og mældist 8,6% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,1% og mældist 4,4% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 3,6% og mældist 4,9% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 2,0% samanlagt.

2004 2 Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 82,6% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,1%), myndu skila auðu (4,8%), myndu ekki kjósa (2,2%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,2%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

2004 2 Fylgi timi

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

2004 2 Studningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 919 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 12. til 18. febrúar 2021