Alþingiskosningar

|

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 24,4%, tæplega þremur prósentustigum lægra en við síðustu könnun MMR sem framkvæmd var undir lok nóvember 2020. Fylgi Samfylkingarinnar jókst um tæp tvö prósentustig og mældist 15,6% en fylgi Pírata lækkaði um tæp tvö prósentustig og mældist nú 12,3%. Fylgi Vinstri grænna jókst um rúmlega þrjú prósentustig og mældist nú 10,9%, fylgi Framsóknarflokksins jókst um eitt og hálft prósentustig og mældist nú 9,1% og fylgi Miðflokksins jókst um tæp tvö prósentustig og mældist nú 8,6%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 50,9% og jókst um tæpt prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 50,0%.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 24,4% og mældist 27,1% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 15,6% og mældist 13,8% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 12,3% og mældist 13,8% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,9% og mældist 7,6% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 9,1% og mældist 7,6% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,8% og mældist 9,5% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 8,6% og mældist 7,0% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,9% og mældist 6,2% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,4% og mældist 5,0% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 1,0% samanlagt.

2004 2 Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,5% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,4%), myndu skila auðu (5,1%), myndu ekki kjósa (2,4%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,6%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

2004 2 Fylgi timi

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

2004 2 Studningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 2.002 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 30. desember 2020 til 11. janúar 2021