Tilveran

|

Trú á að mótmæla- og borgarafundir endurspegli viðhorf þjóðarinnar áberandi meðal kjósenda Samfylkingar og Vinstri grænna.

Alls telja 55,4% svarenda að boðskapur mótmæla- og borgarafunda undanfarinna vikna endurspegli viðhorf meirihluta þjóðarinnar. Mikill munur mælist á afstöðu fólks til fundanna eftir stuðningi við stjórnmálaflokka og stuðningi við ríkisstjórnina.

Af þeim sem segjast styðja ríkisstjórnina eru 18% sem telja að fundirnir endurspegli viðhorf þjóðarinnar. Meðal þeirra sem eru andvígir ríkisstjórninni er þetta sama hlutfall aftur á móti  tæp 80%.

Horft til þess hvaða flokka fólk segist myndu kjósa ef gengið væri til kosninga í dag þá eru rétt um 10% þeirra sem segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn sem telja að fundirnir endurspegli viðhorf meirihluta þjóðarinnar. Á hinn bóginn eru tæp 57% Samfylkingarfólks og rúm 82% Vinstri grænna sem telja að mótmæla- og borgarafundir undanfarinna vikna endurspegli viðhorf meirihluta þjóðarinnar.

 

0812_02

LEIÐRÉTTING: Í upphaflegri tilkynningu var missagt að niðurstöður væru reiknaðar sem hlutfall þeirra sem tóku afstöðu. Hið rétta er að niðurstöður eru hlutfall af heildarfjölda svarenda.

Niðurstöðurnar í heild:

0812_tilkynning_motmaeli.pdf