Alþingiskosningar

|

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 27,1%, rúmlega tveimur prósentustigum hærra en við síðustu könnun MMR sem framkvæmd var í fyrri hluta nóvember. Fylgi Samfylkingarinnar minnkaði um tæp þrjú prósentustig og mældist 13,8%, fylgi Framsóknarflokksins minnkaði um rúmlega tvö prósentustig og mældist 7,6% og fylgi Miðflokksins minnkaði einnig um rúmlega tvö prósentustig og mældist 7,0%. Þá jókst fylgi Flokks fólksins um rúmlega tvö prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 6,2%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 50,0% og minnkaði um tæplega tvö prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 51,7%.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 27,1% og mældist 25,0% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 13,8% og mældist 14,3% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,8% og mældist 16,7% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,5% og mældist 8,4% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 7,6% og mældist 9,9% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 7,6% og mældist 7,5% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 7,0% og mældist 9,1% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,2% og mældist 3,9% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 5,0% og mældist 4,0% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 2,3% samanlagt.

2004 2 Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 79,2% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,1%), myndu skila auðu (7,4%), myndu ekki kjósa (1,4%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (6,0%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

2004 2 Fylgi timi

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

2004 2 Studningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 944 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 26. nóvember til 3. desember 2020